25. apríl 2006

Fyrir nokkrum vikum síðan var ég bara farin að halda að veturinn færi aldrei en nú er vorið sko á leiðinni. Í dag voru 15 stig og sól og æðislegt að ganga úti og láta sólina skína á sig. Atli og Egill voru ekki heldur neitt mjög svekktir með daginn, við vorum úti á leikvelli heillengi eftir að ég sótti þá og svo þegar við komum heim fóru þeir að leika sér á sokkaleistunum úti í garði á meðan ég þreif vetrarskítinn af garðhúsgögnunum. Þannig að nú erum við sko tilbúin fyrir vorið, það vantar bara að kaupa mátulega hallærislegan vaxdúk á plastborðið og skafa skítinn af grillinu og við erum til!

Hlíf í sumarskapi

5. apríl 2006

Um Júróvisjónkeppnina...

...kannski er búið að laga textann?
...kannski er stelpukindin allt í einu búin að læra að syngja?
...eða kannski er bara búið að skipta alveg um lag? það hlýtur eiginlega að vera...

Ja, eða þá að blaðamaðurinn hjá Sydsvenskan (stærsta dagblaðið hér um slóðir) er algerlega tóndaufur og auk þess með afburða lélegan tónlistarsmekk?

Sydsvenskan gerði Júróvisjón söngvakeppninni góð skil í blaðinu í dag. Blaðamaður Sydsvenskunnar fór yfir þau lög sem taka þátt í undankeppninni og velti fyrir sér hvaða lög hefðu stærsta möguleika á að komast áfram í aðalkeppnina. Þau lönd sem talin voru með bestu lögin voru Sviss, Lettland og ÍSLAND!!! Ísland! ég held að það sé ekki í lagi með manninn. Með geininni fylgdi svo stór mynd af henni vinkonu minni Sylvíu Nótt. Laginu er lýst sem góðu poppi, töff og smá fríkuðu lagi, eða fyrir þá sem skilja sænskuna:

"Island tävlar med bra pop með ett stråk av galenskap, lekfull och barnsligt rusig. Ser ut som man iscensatt Björk-publikens uppfattningar om islänskt radiopop. Pianoriff, modernt upptryckta rytmer, stark refräng, kul."

Ég segi nú bara eins og maðurinn sagði: " Það er nú bara ekki í lagi með fólk..!

4. apríl 2006

Já, fyrst ég er farin að játa á mig gamlar hrekkjusvína-syndir þá er kannski bara best að láta ekki þar við sitja! Það er ekki nóg með að ég sé hrekkjusvín heldur hef ég alveg svakalega gaman af því að hlægja að óförum annarra. Þetta vita nú sennilega flestir sem þekkja mig. Það var eflaust þess vegna sem mér fannst blektúpuævintýrið okkar Sæunnar svona óstjórnlega fyndið, þar fór saman hrekkjusvínið í mér og það að hlægja að óförum annarra! Það gerist ekki betra. Sem betur fer hlæ ég nú ekki að hvaða óförum sem er hjá öðrum, en alls kyns hrakfarir eins og að detta á hausinn eða reka stóru tánna í finnst mér alveg ógeðslega fyndið. Stundum er að vísu erfitt að halda sér réttu megin við strikið svo fólk verði ekki móðgað. Í þessu samhengi man ég sérstaklega eftir þegar ein eldri kona sem ég var að vinna með í Goða lýsti fyrir mér með andakt hvernig hún hefði dottið í stiga og orðið röndótt af marblettum á eftir. Fyrst í stað reyndi ég að halda andlitinu og kinka kolli með meðaumkunarsvip, en það varð bara erfiðara og erfiðara og á endanum hreinlega sprakk ég úr hlátir beint framan í konugreyið. Ja, það mátti allavega lesa á svip hennar á eftir að ég fékk engar stjörnur þar.

Annað dæmi sem mér dettur í hug er þegar Jónas hrundi hér niður af háaloftinu. Hann var á leiðinni upp stigann að sækja kassa upp á háaloft og stóð efst í stiganum til að kíkja í kringum sig. Skyndilega rennur stiginn undan honum og bæði Jónas og stiginn lenda á forstofugólfinu með miklum dynk. Þarna lá Jónas vel mörboltaður ofan á stiganum, búinn að skrapa á sér báða handlegginn og verða sér út um óendanlegan fjölda af marblettum. Flestar góðar eiginkonur hefðu á þessu augnabliki rokið að stað til að hjúkra limlestum eiginmanninum... en ekki ég. Þegar ég sá að Jónas hreyfði sig (=hann var sem sé enn á lífi!) hreinlega rifnaði ég úr hlátri mér fannst þetta svo fyndið. Jónasi var kannski ekki alveg eins skemmt. Sjálf þóttist ég nú bara góð að hafa alla vega athugað hvort hann var lifandi áður en ég sprakk úr hlátri, það er alltaf eitthvað!
Já, svona er er ég nú illa innrætt!

Jónas segir að það sé nú mikil blessun að ég skyldi ekki fara í hjúkkuna, hann segir að ég yrði gersamlega gangslaus sem hjúkka, ég yrði svo upptekin við að hlægja að óförum vesalings sjúklinganna. Ja, hvort ég er alveg svo slæm veit ég nú ekki, hvað finnst ykkur?

hjé hjé hjé hjé hjé