21. október 2008

Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar fyrst ég væri nú flutt á Skerið þá væri nú um að gera að skella sér í námskeiðsferð með kallinum í fyrsta skipti. Hann er búinn að fara á námskeið og læknaþing út um allar trissur síðustu ár og alltaf hef ég verið heima með börnin. Þannig að nú ætla ég sko að nýta mér það að fylgja með eins og alvöru læknafrú, bora í nefið og slappa af á meðan hann er á námskeiði, almennilegt! Nú, förinni er heitið til Vín í Austurríki í nóvember og er mikil tilhlökkun í gangi. Var að vísu að hugsa um að hætta við þegar við Íslendingar fórum næstum á hausinn en þar sem þegar var búið að borga undir rassinn á mér þá held ég láti bara slag standa. Best að nota sér það að hafa aðgang að pössun.
Þegar maður ætlar til útlanda er nú yfirleitt hluti af undirbúningnum að verða sér úti um gjaldeyri. Það sem okkur þótti sýnt að það yrði kannski ekki alveg hlaupið að því ákváðum við að það væri kannski ekki alveg úr vegi að vera tímanlega í því. Þannig að ég fór niður í Landsbanka í dag, með útprentaðan farseðil, og ætlaði að fá Evrur. Jú, maður átti að geta fengið mest 300 evrur ef maður var með útprentaðan farseðil sem ég hafði meðferðis. En í Landsbankanum voru til 5 evrur. FIMM EVRUR!! Ég keypti þær og borgaði rúmar 770 krónur fyrir. Ég labbaði sem sagt út með evruseðilinn og hafði þar með á samviskunni að hafa klárað evrusjóð Landsbankans á Akureyri í dag. Og ekki von á fleirum næstu daga sagði konan í bankanum.

Þetta er náttúrulega alveg absúrd. Aldrei hefði maður dottið í hug að lenda í svona ástandi. En þetta var bara svo fáránlegt allt saman að ég og konan gátum bara ekki annað en hlegið dátt af þessu. En ég ætla sem sagt að passa vel upp á evrurnar mínar 5, þær eru verðmætar, og biðja svo aðra Akureyringa sem komu í Landsbankann í sömu erindagjörðum afsökunar á að hafa tæmt bankann.

Jæja, þetta er nú bara tímabundið. Best að hlægja bara að þessu, það er ekki hægt annað.

24. september 2008

Klukk (frá Hallrúnu)

Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:

1. Frystihúsið á Hofsósi, ýmis skítadjobb þar

2. Ábær Sauðárkróki, afgreiðsla og vinna í eldhúsi

3. Goði kjötvinnsla, vinna í pökkun og merkingum

4. Folktandvården Skåne, tandsköterska (tanntæknir)

Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:

1. Sauðárkrókur, Skagfirðingabraut

2. Reykjavík, Bragagata

3. Akureyri, Skarðshlíð

4. Lund, Svíþjóð, Västratornsvägen í Vallkärra

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

1. Mýrin

2. The eternal sunshine of the spotless mind

3. Gone baby gone

4. Robin Hood: Men in tights (þar sem atriðið með blinda kallinum og súlunni er í sérstöku uppáhaldi, haha)

Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:

1. House

2. Så skall det låta

3. Äntligen hemma

4. Ýmsir heimildarþættir um eymd og volæði (eins og Jónas orðar það)

Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:

Held ég hafi ALDREI lesið neina bók oftar en einu sinni, nema þá barnabækurnar fyrir strákana. Les afskaplega lítið af bókum, plægði mig þó í gengum þrjár bækur eftir Arnald Indriðason þegar ég var ólétt af Jóhanni, annað hef ég ekki lesið síðustu ár. En er algerlega tímaritasjúk og get lesið þau oftar en einu sinni.

Matur sem er í uppáhaldi:

1. Humar

2. Grillaður ferskur túnfiskur

3. Íslensk kjötsúpa

4. Fiskisúpan hennar Tobbu

Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):

1. Aftonbladet.se

2. mbl.is

Engar fleiri, en tek gjarnan við ábendingum um áhugaverðar síður!

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

1. Osló, heimsækja ættingja

2. Danmörk, heimsækja ættingja og Legoland

3. Ísland, heimsækja ættingja

4. Róm, æðislegasta borg sem ég hef komið til

Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:

1. Í Róm á góðum veitingastað

2 Í heimsókn hjá Tobbu og Sveinba

3. Í nuddi

4. Á líkamsræktarstöð. Ok, myndi ekki vilja VERA þar, en myndi alveg vilja fá árangurinn af því!

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

Heh, heldur þú virkilega að ég þekki FJÓRA bloggara sem ég get klukkað??!!? Sem að auki lesa þetta blogg sem ég er hætt að uppfæra?!?! Bjartsýni. Humm, prófa alla vega að klukka Bjarkey (ef hún kíkir hér inn ennþá) og læt þar við sitja...

1. ágúst 2008

Komin í netsamband og búin að fá íslensk símanúmer!

Já, við erum komin til Akureyrar eftir töluvert vagg og veltu á Norrænu. Úff, vill ekki einu sinni hugsa um það þá verð ég sjóveik!
Og hafi maður hugsað "Litlir kassar á lækjarbakka" áður en maður flutti þá veit ég ekki hvað maður á að syngja núna. Hér er sem sagt kaos. En Akureyri tekur á móti okkur með þvílíku blíðunni að það liggur við að þetta sé eins og skánsk molla. Garðurinn hérna er alger pottur og væri maður sennilega orðinn brúnn og sætur ef maður hefði tíma til að sleikja sólina. Þannig að ég er bara sæt...ha, ha
Hér eru nokkrir punktar sem hafa dúkkað upp á þessum fáu dögum síðan ég kom hingað:
Plúshliðin:
  • Afskaplega gott að geta bara talað ástkæra ylhýra þegar maður stendur inn í málningavörubúðinni og ræðir um gljástig á málningu við afgreiðslumanninn. Eða þegar maður ræðir við píparann um ástand á lögnum hérna í húsinu. Það var alltaf þegar maður var að ræða eitthvað svona undarlegt á sænskunni sem mann rak í vörðurnar. (Ókey, það var ekki ég sem ræddi ástand lagna, það var Jónas...en samt!)
  • Hér droppa ættingjar við í unnvörpum. Me like!
  • Geta labbað í háa grasinu hérna á hólnum rétt hjá án þess að þurfa að hafa áhyggjur af að fá á mig "fästinga", þ.e. blóðsugupöddur.

Mínushliðin:

  • Ja eins og maður vissi þá svitnar maður nú bara við að versla í matinn. Og stressið í Bónus, guð hjálpi mér.
  • Aftur og nýbúin. Finnst ég vera nýbúin að standa í því að kaupa og festa upp gardínustangir og myndir. Nenni þessu varla. Að vísu bjargar að húsið er hreinlega horfið í háum trjám þannig að það sérst varla hér inn, hvorki að framan né aftan. Keyrði nokkrum sinnum fram hjá húsinu í byrjun því ég sá það ekki fyrir trjánum!
  • Í þessu húsi hefur ekki nokkur manneskja litið út í garð í fleiri ár. Allt ofvaxið, nema grasið sem ekki lifir hér í skógarbotninum. Og hér eru engin blómstrandi blóm. En þessu verður nú öllu kippt í liðinn næstu sumur...
  • Allir nágrannarnir virðast vera kominir á eftirlaunaaldurinn þannig að einu börnin hér í nágrenninu eru hugsanlega barnabörn.
  • Sakna þess að hafa ekki Tobbu og Sveinba í nágreninnu. Hulk, snöft..

Undarlega hliðin:

  • Að vera alltaf spurð um hvort maður vilji kvittun í verslunum.
  • Ef maður er búinn að flokka rusl eftir öllum kúnstarinnar reglum í mörg ár, þá er afskaplega erfitt að hætta því.
  • Skyr er gott, en íslendingar virðast vera algjörlega skyrfrelsað fólk. Og mjólkurvörur með lágu sykurinnihaldi virðast ekki vera á hverju strái.
  • Mér lá nú næstum við yfirliði þegar ég fór í Bónus og komst að því (eftir mikla leit að hrökkbrauðsrekkanum) að það er bara seld EIN EINASTA tegund af hrökkbrauði í Bónus! En við hliðina á því eru örugglega seldar tuttugu tegundir af súkkulaðikexi!!

Jamm, þannig var nú það. Best að fara að gera eitthvað að viti...

6. júlí 2008

ALLT ÚT Í GÁM!!!!!!!!


Ef maður er að pakka öllu út í gám, nú þá pakkar maður ÖLLU út í gám. Þar með talið passanum mínum og jakkafötunum sem Jónas ætlaði að vera í í skírninni í Osló....

Humm... fjölskyldumeðlimirnir eru farnir að fela sig fyrir mér, hvur veit nema ég pakki þeim annars bara út í gám líka!!

3. júlí 2008

Nú er þetta allt að koma..

Samantekt á deginum:

  • Best í dag: Að þrátt fyrir kæfandi hita hérna getur maður alltaf svalað sér við tilhugsunina um flíspeysusumar á Akureyri. My like!
  • Ótrúlegast í dag: Þegar ég settist inn í bílinn (sem var síðast notaður í gær) og það var massífur kóngulóarvefur frá stýrinu yfir í mælaborðið...
  • Fyndnast í dag: Þegar ég var að keyra heim úr búðinni og sá eldri dömu, frekar frjálslega vaxna, úti að labba með hundana sína... á bikiníi einum fata! Ja, af hverju ekki, það er nú einu sinni kæfandi hiti hérna!
  • Duglegastur í dag: Jónas! Hann er eins og batterískanínan í auglýsingunni, alltaf fullur af orku og alltaf að. Púff.

Jæja, nú verður gámnum parkerað hér fyrir framan húsið snemma í fyrramálið. Svo er bara að fara að pússla og sjá hvort við komum öllu í hann. Mikið afskaplega verð ég fegin þegar þetta er búið. Það að hafa Jóhann í eftirdragi þegar maður er að reyna að koma skipulagið á draslið hérna er nú ekki svo vel heppnað! Maður setur eitthvað ofan í kassa og svo fimm mínútum seinna rekst maður kannski á sama hlut liggjandi á klósettgólfinu!

Gámurinn fer héðan á mánudaginn og við siglum svo á stað til Osló á þriðjudaginn. Þetta verður því síðasta innlegg mitt hérna frá Svíþjóð, svo kemur bara í ljós hvernig verður með Akureyrarblogg. Kannski get ég bloggað um það sem kemur mér "spánskt" fyrir sjónir heima, að minnsta kosti þangað til maður verður sjálfur búinn að aðlagast!
Sjáumst í Eikarlundinum!

27. júní 2008

Flutningapælingar

Jæja, ein vika þangað til gámurinn kemur... Og hvernig leggst þetta í mann? Jú, akkúrat núna er maður bara að hugsa um að að maður verður feginn þegar pökkunarstandið er búið. En eitt og annað kemur nú upp í hugann, hér eru nokkrir punktar!

Ég á eftir að sakna:
  • Garðsins míns. Sérstaklega kryddjurtanna, Stokkrósanna og Lavendersins.
  • Sænska sumarsins. Að borða úti á kvöldin. Hvað á maður að gera við allar stuttubuxur og sandala sem eru til hérna? Og garðhúsgögnin eru nú ekki beint nauðsyn á Skerinu, eða?
  • Allra sem ég er búinn að kynnast hérna. Vinnufélaganna, grannanna og síðast en ekki síst vinanna.
  • Kisunnar minnar. En sem betur fer er hún búin að fá nýtt heimili hjá Tobbu vinkonu og þar unir sér hún vel. Takk Tobba, þú bjargaðir alveg sálarheill minni (og kisu!)
  • Að geta sest í bílinn og keyrt í innan við klukkutíma og alltaf fundið nýja og spennandi staði til að skoða. Og að hafa Köben svona nálægt.
  • Rólegheitanna hérna. Og að búa hálfgert úti í sveit.
  • Held að uppáhalds hrökkbrauðið mitt fáist ekki á Íslandi... buhu!! Og hér er maður orðinn gjörspilltur hvað grænmeti og ávexti varðar. Lifum á nýuppteknum kartöflum og jarðaberjum þessa dagana.

Og þegar maður kemur til Íslands:

  • Ég hef enga hugmynd um hvernig leikskóla- né skólakerfið er á Íslandi. Atli var bara 1 og 1/2 árs þegar við fluttum. Vona að þetta verði fínt.
  • Mitt ástkæra ylhýra er nú frekar sænskuskotið... jæja, verðu nú ekki lengi að kippa því í liðinn, það er þá alltaf hægt að hlægja að mér! Hef mestar áhyggjur af því að þeim elsta verði strítt.
  • Vona að strákarnir eignist góða vini sem búa nálægt.
  • Spái mikið í hvernig verður með vinnu hjá mér. Vona að það séu einhverjir hressir tannlæknar með viti þarna á Akureyri. (Og með viti á ég við að þeir vilji ráða mig í vinnu, að sjálfsögðu!).
  • Hvernig á íslenska þjóðarsálin eftir að leggjast í mann? Alla vega búið að vara mann við að það sé mikill barlómur á Skerinu núna. Ætli við þurfum ekki áfallahjálp eftir að hafa verslað í matinn í fyrsta skiptið.
  • Ég ætla að gera mitt besta til að gerast ekki fréttasjúk eins og flestallir Íslendingar virðast vera. En íslenska stressinu smitast maður nú sennilega af á endanum.
  • Öll fjölskyldan hlakkar til að loksins getað keypt eins mikið skyr og við getum í okkur látið. Og svo höfum við jú Brynjuísinn... úff þetta hljómar eins og nokkur extra aukakíló...
  • Það verður sko ljúft að komast í sund annað slagið.
  • Og síðast en alls ekki síst veður frábært að hafa ömmur, afa og aðra ættingja nálægt. Eftir 8 ára heimsóknasvelti eigum við gersamlega eftir leggjast upp á ykkur! Bíðið þið bara!
  • Og baranapössun? Jibbíí. LOKSINS!!