Heimasmíðaðir sænskir hringtorgshundar
Jú, þetta byrjaði allt einhversstaðar upp í Mið-Svíþjóð. Í einu hringtorginu í einhverju ónefndu krummaskuðinu þar um slóðir stóð listaverk af hundi að hoppa í gegnum hring. Einn daginn hafði einhver gert sér lítið fyrir og hoggið höfuðið af vesalings styttuhundinum. Vegagerðarin fjarlægðu styttuna hið snarasta, en svo leið og beið og aldrei var gert við styttuna og hún því aldrei sett aftur á sinn stað. Nú, einhverð varð frekar fúll yfir framtaksleysi vegagerðarinnar og hundastyttuskortinum á hringtorginu og "tók lögin í sínar hendur" og smíðaði nýjan hund úr afgangstimbri og stillti upp á hringtorginu. Ekki voru starfsmenn vegagerðarinnar mjög ánægðir með þetta einkaframtak og tóku timburhundinn í sína vörslu. Skýringin var að hundurinn gæti skapað slysahættu. Ekki leið á löngu þangað til nýr timburhundur birtist á öðru hringtorgi í bænum og endurtók sagan sig, vegagerðarmenn tóku hundinn í sína vörslu.

Einhver hefði kannski getað giskað á að hér hefði sagan endað. En ó nei, nú fóru nýjir timburhundar að birtast á hringtorgum út um allt. Langar, feitar, stórar, litilar, fallegar og ljótar eftirlíkingar af besta vini mannsins birtust út um allt. Allir hundarnir gerðir úr því er virtist afgangstimbri, eða jafnvel einhverskonar endurvinnsludrasli og sumir meir að segja með húfu eða trefil. Hundarnir fóru að birtast á hringtorgum í nágrannabæjunum og svo á endanum út um alla Svíþjóð. Vegagerðin varð að játa sig sigraða. Hringtorgahundarnir voru orðnir hálfgert þjóðarsport.
Nú síðast í dag sá ég heila hringtorgshundafjölskyldu á hringtorgi hérna rétt hjá þar sem ég bý, og voru þeir meir að segja allir með jólahúfur í tilefni aðventunnar. Blöðin hér hafa fylgst grannt með þessa hundavæðingu hringtorga og má nánast á hverjum degi lesa um ný eintök og skoða myndir af þeim. Hefur meir að segja verið haldin "fegurðarsamkeppni hringtorgahunda" og var velsmíðaður og fallega málaður seppi á ónefndu hringtorgi hér á Skáni valinn sá fegursti. En þar með var hundurinn sá orðinn það merkilegur að honum var náttúrulega stolið áður en auga á festi!
Það má því segja að hringtorgin hér í landi séu bókstaflega farin í hundana. En hvað hauslausu hundastyttunni upp í Mið-Svíþjóð líður fylgir ekki sögunni...