Á laugardaginn fyrir viku síðan sat Egill og togaði í hálsmálið á bolnum sínum. Ég spurði hvað hann væri eiginlega að gera og hann svaraði eymdarlega að hann væri með "vont" á öxlinni. Við inn á bað, plástri skellt á öxlina og allt var í lagi eftir það. Kvöldið eftir gerist alveg það sama með Atla, hann situr og tosar í hálsmálið á bolnum og kvartar yfir sári á öxlinni. Humm, þetta var nú eitthvað dularfullt hugsaði ég og lyfti upp bolnum, og viti menn þarna var slatti af bólum, og á Agli líka. Hlaupabólan var kominn í bæinn. Mjög hugulsamt af þeim bræðrum að fá þetta svona samtímis, og auk þess að fá þetta frá yfrir sumarið, verð ég að segja. Þannig að strákarnir eru búnir að vera heima í vikunni og eru allir að braggast. Atli var að vísu svo óheppinn að fá hlaupabólu í augað sem var nú svona minna skemmtilegt.
Nú, annars er það helst að frétta að vorið er komið í bæinn, hitinn búinn að vera yfir 20 stig síðustu þrjá daga og gróðurinn sprettur þvílíkt. Það fer að vísu eitthvað minna fyrir framkvæmdagleðinni í garðunum hjá okkur núna, gerum bara það nauðsynlegasta fyrir nýju eigendurna. Þeim mun meira spáum við í hvernig við viljum hafa allt þegar við flytjum. Við erum að sjálfsögðu eins og gráir kettir í nýja húsinu, förum og kíkjum og sjá hvernig allt lítur út. Nú er allt á fullu við að mála bæði utan og innan, og búið að flísaleggja baðherbergi og forstofu. Hrikalega gaman að sjá hvernig þetta er smám saman að taka mynd. Það sem er minna skemmtilegt sem við höfum verið að gera undanfarið er að fara í gegnum allt draslið af háaloftinu, sortera, pakka og henda. Jakk, skil ekki hvernig er hægt að sanka að sér svona miklu drasli, maður vill aldrei henda neinu, maður gæti nú hugsanlega einhverntíman í fjarlægri framtíð dottið í hug að nota hlutinn...
Jamm, þetta var nú það helsta héðan í bili, ætla út í garð að sleikja sólina meira.. hehe... :)