24. mars 2008
23. mars 2008
22. mars 2008
Bíóferðir og snjómokstur í kafhríð..
15. mars 2008
Framhaldsskýrsla frá ælubælinu.
- Jóhann dúndurhress
- Egill varla farinn að borða neitt ennþá
- Jónas drulluslappur
- Atli veikur, ældi fyrst fyrir 10 dögum og er búinn að æla tvisvar í dag
- Og við getum orðað það svo að ég hafi einhverntíman verið hressari (þó það væri ekki nema andlega af þessu æluveseni)...
Við erum búin að vera með þessa pesti í húsinu í rúmar þrjár vikur núna, þetta fer nú að verða gott.
Jamm, þetta var sem sagt æluskýrslan frá Skáni. Spennandi ekki satt? En yfir í allt aðra sálma.
Svar til Elvu:
Jú, Elva við erum væntanlega að flytja á Skerið í sumar. Það kom endanlega í ljós núna um mánaðarmótin þegar Jónas fékk að vita að hann hefði fengið vinnu á FSA. Við vildum helst ekki ræða þetta við neinn fyrr en það væri komið í ljós nema hvað að mamma vissi hvað við vorum að pæla. En hún fékk skýr fyrirmæli um að segja ekki nokkrum manni frá fyrr en þetta væri komið á hreint. Frekar leiðinlegt að allir væru búnir að frétta af þessu ef Jónas hefði ekki fengið vinnuna. Eitthvað virtist þetta leka út, meir að segja áður en Jónas var svo mikið sem búinn að sækja um stöðuna, en mamma stóð sig í þessu og bláneitaði öllu þegar fólk var að spyrja hana hvort við værum á leið heim.
En þú ert sem sagt fyrsta manneskjan til að spyrja okkur beint!
Þannig að nú er bara heljarinnar sirkus í gangi, mikið sem þarf að huga að fyrir flutninga milli landa. Næst á dagskrá er að setja húsið hér á sölu (við erum búin að festa okkur hús á Íslandi), svo þarf að panta gám og ég veit ekki hvað. Svo mikið er alla vega víst, að það er sko ekki gefið að flytja heim, en maður verður bara að bíta í það súra, þetta leggst alla vega vel í okkur!
10. mars 2008
Skýrsla frá ælubælinu
- Jónas fer til Íslands til að vinna og tengdó kemur til að passa á meðan ég er í vinnunni.
- Jóhann fær ælupest og stuttu seinna verður tengdó líka veik.
- Jóhann verður svo veikur að við förum með hann á neyðarmóttökuna og verðum að fá lækni heim tvisvar sinnum.
- Tengdó verður ennþá slappari en Jóhann fer að braggast eftir að hafa ælt upp öllu í fimm sólarhringa.
- Atli verður veikur en fer að braggast eftir þrjá daga.
- Jónas kemur heim.
- Tengdó fer heim hálfveik.
- Atli veikist aftur.
- Jónas verður veikur, ég rýk heim úr vinnunni til að passa Jóhann og er varla komin heim þegar það er hringt frá leikskólanum því Egill er orðinn veikur.
Og þannig er staðan í dag. Í vinnunni hjá mér finnst engum merkilegt lengur að ég verði að rjúka heim: "Ha, nú? Hver er veikur núna?" Og svo er maður með samviskubit yfir að skilja vinnufélagana alltaf eftir með það sem ég á að vera að gera, þó það sé nú lítið við því að gera. Týpískt. Bíð nú bara eftir því að verða veik sjálf, er orðin svo taugaveikluð af þessu öllu saman að maður er sífellt að spá í hvernig manni líður. "Jú, nú finn ég sko að ég er að verða skrýtin í maganum..."
En nú finnst mér sem sagt nóg komið. Er búin að fá nóg af því að þrífa upp ælur, deila út kóki og horfa upp á fjölskyldumeðlimi líða virkilega illa. Pirr, arg, stuna, hvæs, nöldur.
Jäkla skit (fyrirgefið orðbragðið)
Jæja, þá er ég búin að fá aðeins útrás. Lofa að vera í betra formi næst.
Kveðja frá ælubælinu á Västratornsvägen.
