25. desember 2007

GLEÐILEGA JÓLAHÁTÍÐ!!!

Vona að þið eigið gleðilega jólahátíð, kærar þakkir fyrir okkur. Er búin að taka helling af myndum og eitthvað af þeim hlýtur að rata inn á bloggið fljótlega. Erum annars búin að hafa það ósköp gott hérna þrátt fyrir þráláta kvefpest sem verið hefur að herja á fjölskylduna. Erum búin að halda eins íslensk jól eins og hægt er að halda hér um slóðir (meir að segja með norðlensku hangiketi, ORA baunum, maltesíni og laufabrauði!) og það besta af öllu er að geta hlustað á jólakveðjurnar á Rás 1 í gegnum netið. Það er alvöru jólafílingur!
Vonandi hafið þið það gott, jólakveðja ;)

11. desember 2007


Jæja, þá eru jólin farin að nálgast með hröðum skrefum. Að sjálfsögðu er maður farinn að hita upp með því að éta yfir sig meðal annars á jólahlaðborði, nú síðast með vinnufélögunum í hádeginu í dag. Og ég verð bara að segja að ég fíla sænska jólamatinn, eins og mér fannst hann nú óspennandi fyrst þegar ég flutti hingað. Ég er meir að segja farin að spá í hvort ég eigi að fara að prófa mig áfram með smá sænskan jólamat hérna um jólin. Samt hringdu viðvörunarbjöllur í hausnum á mér fyrst þegar ég fór að spá í þetta, "jæja, er ég nú orðin SVONA sænsk?!?".
En málið er að íslenskur jólamatur er svo sem ekkert gífulega spennandi, ja alla vega íslenskur jólamatur sem maður hefur aðgang í Svíþjóð. Fyrstu jólin hér keyrðum við yfir til Danmerkur til að kaupa hamborgarahrygg alveg þangað til við komust að þeirri niðurstöðu að okkur fannst hamborgarahryggur ekkert góður! Þannig að þá voru góð ráð dýr, niðurstaðan varð sú á endanum að við kaupum sænskt hangiket af Íslendingi sem býr hér ofar í Svíþjóð og svo keyrum við yfir til Köben og kaupum svínabóg með puru. Alveg ágætismatur en ég væri alveg til í smá síld, egg, heitreyktan lax og Freistingu Janssons sem er hreint út sagt hrikalega góð. Og smá spari-sænskar kjötbollur fyrir strákana... Nei, þetta gengur ekki lengur, nú verð ég bara að hysja upp um mig íslensku buxurnar. Kannski að ég ætti að biðja mömmu um að koma með vel kæstan hákarl? Þá er maður nú rammíslenskur ekki satt?

8. desember 2007





Frá hinni hefðbundnu jólahlaðborðsferð fjölskyldunnar. Við förum alltaf á sama stað, lengst út í sveit þar eru hjón sem reka hálfgerða sveitagistingu og veitingar tengdar því. Þar eru börn sérstaklega velkominn og jólasveinninn kemur meir að segja í heimsókn og gefur krökkunum pakka. Alveg meiriháttar!

5. desember 2007

Nokkrar myndir frá Kanarí.



Hawaiirós í blóma.











Mynd frá rútuferðinni - útsýni yfir norðurhluta Tenerife. Eins og sést ekki mikill gróður, aðallega kaktusar og þykkblöðungar.




Frá Garachico, fallegasta þorpi sem ég hef á ævi minni séð.








Hótelið sem við vorum á var brjálæðislega stórt og ekki var hótelgarðurinn og sundlaugin minni.





Jólarósirnar sem við kaupum í blómabúðinni fyrir jólin eeu aðeins minni en þessi sem sennilega var milli 3ja og fjögurra metra há.




Pálmatré og glæsilegar byggingar í kvöldsólinni.

4. desember 2007

Ok, ég hef nú alltaf verið þekkt fyrir að hlægja að óförum annarra, því pissaði ég næstum á mig úr hlátri við að lesa þetta blogg... þið verðið bara að kíkja!

http://gudrunb.blog.is/blog/gudrunb/#entry-383012

2. desember 2007

Tapas og kaktusalýs.
Jæja, þá er ég komin heim frá Kanarí. Alveg rosalega fín ferð. Sex tímar í flugvél er langur tími, maður er hálf flatrassa á eftir. Ja, brúnn varð maður alla vega ekki í þessari ferð, enda var það ekki planið. Búin að sitja á fyrirlestrum frá morgni til kvölds (ekki verður maður minna flatrassa af því) en þetta voru mjög fínir fyrirlestrar og ég er búin að læra alveg helling. Það er alltaf hægt að læra meira um tennur og allt sem þeim tengist...
Hitinn þarna var afskaplega þægilegur, svona 23 til 25 gráður og oftast smá gola. Mjög undarlegt að sjá jólaskraut í þessu sumarveðri! Vorum í fyrirlestrarfríi á miðvikudeginum og þá greip ég tækifærið og fór í rútuferð um Teneriffa eyjuna. Flestir aðrir ætluðu sko aldeilis að nýta tækifærið og liggja í sólinni allan daginn. Ég hef nú aldrei verið neitt fyrir að liggja í sólbaði, mér finnst það óþægilegt og hef auk þess enga eirð í mér að liggja kyrr og sólbakast!
Þannig að ég fór í rútuferð og sá margt fallegt. Maður hefur þessa mynd í huganum að Kanarí sé eintómar sólarstrendur, hótel og sólbrúnir gamlingjar. Þessi mynd af eyjunum passaði alveg þegar maður skoðaði sig um nálægt hótelinu (hef aldrei á ævi minni séð eins marga og eins brúna gamlingja, eins mikið af dýrum búðum og eins hrikalegan fjölda af veitingahúsum á litlu svæði!), en þegar maður var komin aðeins frá helstu túristasvæðunum var margt áhugavert að sjá. Teneriffa liggur til dæmis það sunnarlega að þar vex ekki gras nema þar sem það er vökvað reglulega. Þannig að út í náttúrunni er ekki stingandi strá að sjá, þarna vaxa bara pálmatré, kaktusar og aðrir þykkblöðungar. Allt fullt af nálum og kaktusávöxtum. Sem sagt ekki gott að hlaupa út á víðavang þar ef maður vill ekki verða allur út í nálum. Kanaríbúar rækta mikið að banönum, þannig að það var mikið af bananatrjám, og auk þess rækta þeir líka möndlur, tóbak, saffran, döðlur, fíkjur og margt annað (Fraktaði heim fíkjum, möndlum, kaktusmarmelaði og pálmasýrópi). Ég gerðist meðal annars svo fræg að prófa að tína kaktusalýs, hafið þið prófað það? Jú, kaktusalýs voru mikilvæg útflutningsvara fyrir eyjaskeggja á árum áður, þær eru nefnilega fullar af eldrauðu litarefni sem var mjög eftirsótt áður en verksmiðjuframleidd litarefni litu dagsins ljós. Campari (áfengið sem er á bragðið eins og eyrnarmergur, jakk!) og sumar tegundir af varalitum eru til dæmis litaðar með lit frá kaktusaúsum.
Ég sá meðal annars fallegasta þorp sem ég hef á ævi minni séð. Hef aldrei séð neitt í líkingu við það, gekk bara um göturnar þar með vantrúarsvip á andlitinu. Ótrúlega fallegt með afslöppuðum smábæjaranda. Vona að ég eigi eftir að komast þangað aftur og stoppa í einhvern tíma. Þegar ég síðan kom "heim" á hótel og fór að lýsa ferðinni fannst mér eins og að margir hálf sæju eftir að hafa legið á ströndinni allan daginn.
En svo var náttúrulega farið út að borða með vinnufélögunum á hverju kvöldi. Meðal annars búin að smakka brjálæðislega góðan fisk að ógleymdu tapasinu. Og svo gerði ég svolítið sem ég hef aldrei gert áður: Stóð upp á veitingastað og söng "Skál og syngja Skagfirðingar" fyrir sænska vinnufélaga mína (var bláedrú!).... jamm, nóg um það... fór svo á diskótek á eftir og dansaði eins og vitlaus manneskja (hef ekki gert það síðan sögur hófust) og uppskar hræðilega strengi í ANNARRI rasskinninni daginn eftir, hvernig sem ég fór nú að því....!!
Ég veit ekki, ég er farin að halda að ég sé frekar grámygluleg og litlaus svona dagsdaglega í vinnunni því vinnufélagar mínir voru oft hissa í ferðinni, fannst alveg stórmerkilegt að sjá mig dansa, fíflast, syngja og láta almennt eins og fífl (eins og mér er annars tamt!). Mér hefur greinilega tekist að villa á mér heimildir fram að þessu.... hí, hí!!
En alla vega, til að gera langa sögu stutta (..of seint..), þá var þetta fín ferð. Skrýtið að koma heim í kuldann og myrkrið, og það sem er ennþá undarlegra: ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL!!
Jæja, læt þetta nægja að sinni, set inn myndir seinna. Kominn háttatími hjá mér....