11. nóvember 2007

Fyrst ég er loksins búin að læra að setja myndir inn á bloggið get ég ekki stillt mig........!
Frá ferðinni í Experimentarium í Kaupmannahöfn í haust (Experimentarium er svona hálfgert tæknisafn þar sem maður má og á að fikta í öllu). Atli og Egill stilltu sér upp fyrir framan risaeðlurnar sem voru í fullri stærð og hreyfðu sig ótrúlega eðlilega. Egill var smá smeykur í fyrstu en þegar hann var búinn að fatta að þær voru ekki "alvöru" var hann náttúrulega alveg heillaður.


Önnur mynd úr Experimentarium; Jömmíí..... Egill með grænmeti í matinn!

8. nóvember 2007

Jæja, þá er ég búin með fyrstu vikuna í vinnunni. Búin að vera temmilega heilaþvegin þegar ég kem heim á kvöldin, en þetta er nú samt fljótt að koma. Helst tölvufjandinn sem vefst fyrir mér en það er nú ekkert nýtt, he,he! Tannlæknirinn sem ég vinn hjá er við sama heygarðshornið, sem sé alveg jafn fúll og vanalega og allar hinar klinkurnar á stofunni eru yfir sig ánægðar að ég sé komin aftur þannig að þær sleppi við að vinna hjá honum. En sjálfri finnst mér bara fínt að vera hjá honum (ég hlýt bara að vera svona skrýtin). Ég nenni bara ekkert að vera að æsa mig yfir kallinum, hann er bara eins og hann er, besta skinn inn við beinið og svolítið gamall í hettunni. Það gildir bara að loka eyrunum þegar það á við og þykjast vera mátulega sammála til að hafa hann góðan!
Nú svo fer bara að styttast í Kanarí, verður ekki amalegt. Spurning samt hvort maður verði ekki alveg búni að fá nóg af vinnufélögunum eftir að hafa hangið með þeim og engum öðrum í heila viku! En það verður alla vega gaman að sjá Teneriffa, sleikja aðeins sólina (ekki vanþörf á á þessum árstíma) og njóta þess að vera til. Hef ekki einu sinni hugmynd um hvað á að fjalla um á þessu námskeiði, enda talar enginn um það í vinnunni, það eru allir miklu spenntari fyrir sjálfu ferðalaginu og ævintýrinu eins og skiljanlegt er. Þannig að nú er bara að fara að pakka niður sólarvörninni og hárburstanum.....
TENERIFFA HERE I COME!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!




Ég og kisi... við erum vinir! Er maður annars ekki orðinn flottur, orðinn eins árs og allt!!?

1. nóvember 2007

Frá bleyjum yfir í tennur.

Já, þá er sko ekkert elsku mamma lengur. Nú er bara að rífa sig upp klukkan sex í fyrramálið og hjóla í vinnuna. Ja, það að vakna klukkan sex verður nú ekkert sjokk, sá yngsti er morgunhress með afbrygðum þannig að maður er hvort eð er alltaf vaknaður kortér í snemma. Aðalmunurinn verður kannski að það verður ekkert elsku mamma fyrir Jóhann meðan ég er í vinnunni, nú er það pabbi sem gildir og eins gott, þar sem hann er orðinn eins og algert frímerki á mér.

Það sem er kannski heldur verra er það að mér finnst ég gersamlega vera búin að gleyma öllu sem hefur með vinnuna að gera. Og ekki bætir úr skák að á meðan ég var í fæðingarorlofi kom nýtt tölvusístem með nýju bókunarkerfi, sjúkraskýrsluskráningu, tímabókunum og reikningakerfi. Umm, það verður gaman hjá mér. Og hafi ég haldið að mér yrði gefinn tími til að læra á þetta fyrst áður en ég set allt á fullt þá hafði ég rangt fyrir mér. Beint inn að tannlæknastól og setja í gang! Jæja, ég er alla vega nokkurn veginn viss um að einhver á eftir að geta hlegið að mér á morgun og þannig getur maður kannski gert daginn glaðari fyrir einhvern.

Svo kem ég heim seinnipartinn á morgun, gersamlega heiladauð og stari tómum augum út í loftið. En þá er nú gott að eiga ástkæran eiginmann sem nú er heima í feðraorlofi. Hann tekur örugglega vel á móti mér, færir mér dagblaðið og inniskóna, vísar mér inn í sófa, og ég get svo lesið í ró og næði á meðan ég finn matarylminn breiðast um húsið. Svona eins og þegar Jónas kemur heim úr vinnunni....he, he! Nja, kannski ekki alveg! En það er nú samt gott að skipta aðeins um hlutverk og komast frá heimilinu. Ætla ég að því tilefni að satsa aðeins extra á mig, fara í leikfimi og svona. Já, ég segi nú bara eins og Jóhanna forðum: "Minn tími er kominn!".. og hana nú!