27. júní 2008

Flutningapælingar

Jæja, ein vika þangað til gámurinn kemur... Og hvernig leggst þetta í mann? Jú, akkúrat núna er maður bara að hugsa um að að maður verður feginn þegar pökkunarstandið er búið. En eitt og annað kemur nú upp í hugann, hér eru nokkrir punktar!

Ég á eftir að sakna:
  • Garðsins míns. Sérstaklega kryddjurtanna, Stokkrósanna og Lavendersins.
  • Sænska sumarsins. Að borða úti á kvöldin. Hvað á maður að gera við allar stuttubuxur og sandala sem eru til hérna? Og garðhúsgögnin eru nú ekki beint nauðsyn á Skerinu, eða?
  • Allra sem ég er búinn að kynnast hérna. Vinnufélaganna, grannanna og síðast en ekki síst vinanna.
  • Kisunnar minnar. En sem betur fer er hún búin að fá nýtt heimili hjá Tobbu vinkonu og þar unir sér hún vel. Takk Tobba, þú bjargaðir alveg sálarheill minni (og kisu!)
  • Að geta sest í bílinn og keyrt í innan við klukkutíma og alltaf fundið nýja og spennandi staði til að skoða. Og að hafa Köben svona nálægt.
  • Rólegheitanna hérna. Og að búa hálfgert úti í sveit.
  • Held að uppáhalds hrökkbrauðið mitt fáist ekki á Íslandi... buhu!! Og hér er maður orðinn gjörspilltur hvað grænmeti og ávexti varðar. Lifum á nýuppteknum kartöflum og jarðaberjum þessa dagana.

Og þegar maður kemur til Íslands:

  • Ég hef enga hugmynd um hvernig leikskóla- né skólakerfið er á Íslandi. Atli var bara 1 og 1/2 árs þegar við fluttum. Vona að þetta verði fínt.
  • Mitt ástkæra ylhýra er nú frekar sænskuskotið... jæja, verðu nú ekki lengi að kippa því í liðinn, það er þá alltaf hægt að hlægja að mér! Hef mestar áhyggjur af því að þeim elsta verði strítt.
  • Vona að strákarnir eignist góða vini sem búa nálægt.
  • Spái mikið í hvernig verður með vinnu hjá mér. Vona að það séu einhverjir hressir tannlæknar með viti þarna á Akureyri. (Og með viti á ég við að þeir vilji ráða mig í vinnu, að sjálfsögðu!).
  • Hvernig á íslenska þjóðarsálin eftir að leggjast í mann? Alla vega búið að vara mann við að það sé mikill barlómur á Skerinu núna. Ætli við þurfum ekki áfallahjálp eftir að hafa verslað í matinn í fyrsta skiptið.
  • Ég ætla að gera mitt besta til að gerast ekki fréttasjúk eins og flestallir Íslendingar virðast vera. En íslenska stressinu smitast maður nú sennilega af á endanum.
  • Öll fjölskyldan hlakkar til að loksins getað keypt eins mikið skyr og við getum í okkur látið. Og svo höfum við jú Brynjuísinn... úff þetta hljómar eins og nokkur extra aukakíló...
  • Það verður sko ljúft að komast í sund annað slagið.
  • Og síðast en alls ekki síst veður frábært að hafa ömmur, afa og aðra ættingja nálægt. Eftir 8 ára heimsóknasvelti eigum við gersamlega eftir leggjast upp á ykkur! Bíðið þið bara!
  • Og baranapössun? Jibbíí. LOKSINS!!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

við hlökkum allavega til að fá ykkur í nágrenið og þið megið leggjast eins og þið viljið.

Nafnlaus sagði...

Segi eins og Svala. Hlakka mikið til að fá ykkur, kynnast strákunum og svona. Og sama hér megið leggjast eins og þið viljið upp á okkur.

kv. Elva.
Ps. Er búin að borða oft út á palli í júní, bæði í hádegi og að kvöldi og nota garðhúsgögnin daglega. Svo það er alveg hægt að stroka þann lið út af "sakna-listanum".

Nafnlaus sagði...

Heyrðu ég segi eins og Elva, ég nota mín garðhusgögn alveg helling og borða oft uti. Mér finnst skólakerfið og leikskólakerfið bara fínt hérna.. þu þarft pottþétt fullt af þolinmæði þegar þu ert að aðlagast Íslandi aftur hehe... Gangi ykkur vel :D Og þið eruð alltaf velkomin í heimsókn í Njarðvík ;)