Já, ég skal nú bara segja ykkur það, komin í netsamband, er bara ekki að trúa þessu. Það tók sem sagt rétt rúmlega 5 mánuði að komast í netsamband eftir að við fluttum og ennþá erum við ekki komin með heimasíma en það styttist í það. Talandi um sænskan seinagang, er ekki viss um að fólk myndi láta bjóða sér svona lélega þjónustu á Skerinu.
En nóg um það. Það er sko búið að vera nóg að gera síðustu 5 mánuði, svo ekki sé meira sagt. Flutningar, að koma sér fyrir, 2 ferðir til Íslands í 2 brúðkaup og síðast ekki síst það allra stærsta: Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn sem kom í heiminn þann 17. október síðastliðinn og hlaut nafnið Jóhann Ernir. Við erum sem sagt ekki búin að sitja auðum höndum hér á bænum síðastliðna mánuði. Ætla nú að reyna að halda áfram að blogga, svona í þeim takt sem ég hef tíma til. Hversu oft það verður kemur svo bara í ljós...
24. nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli