23. febrúar 2007

Jæja, þá er árið liðið í aldanna skaut og komið árið tvöþúsundogsjö. Og ég búin að eiga ammæli. Ég verð eiginlega að segja að þetta var í fyrsta sinn sem ég hefði alveg viljað sleppa við að verða einu ári eldri. Afmælisdagurinn var náttúrulega fínn, Jónas sætur í sér að baka tertu handa mér og svona (slæ aldrei hendinni á móti góðri tertu, ha, ha!!) , þannig að ekkert yfir sjálfum deginum að kvarta. Það er bara þetta með þrjátíuogfimm. Búin að velta því fyrir mér hvernig stendur á því að mér fannst þetta svona miður gaman og er held ég búin að komast að þeirri niðurstöðu að þetta hafi eiginlega ekki með neitt þrjátíuogfimm að gera heldur frekar aðstæðurnar akkúrat núna. Ég lá náttúrulega á sóffanum síðustu tvo mánuðina áður en ég átti Jóhann, ekki verður maður beint buffaður af því (meira svona eins og Lindubuff), Eftir fæðinguna tóku svo náttúrulega við andvökunætur með tilheyrandi þreytu og baugum undir augunum. Og svo nú þegar maður ætlar að fara að koma sér í gang og hreyfa sig, fara út í göngutúra og þvílíkt þá er bara alltaf skítakuldi, mýgandi rigning og rok. Er þar af leiðandi komin með inniveikina líka með temmilegt framtaksleysi sem fylgifisk. Nú og svo verður maður bara allt í einu þrjátíuogfimm mitt í öllu þessu og kennir aldrinum um allt það sem miður hefur farið síðustu mánuði. En svona eftir á fór ég nú að hugsa þannig að iss, þetta var sko ekkert aldurinn bara heldur meira svona tímabundið álag og óheppni.... þangað til í dag...
Fór í sjónmælingu í dag. Er farin að sjá það illa að ég þarf gleraugu. Ekki bara til að lesa. Til að ganga með ALLTAF.
Díses nei, kannski hafði ég bara rétt fyrir mér: Ég ER orðin gömul!!!!!!!!!!!!!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með afmælið!!!!! Mæ god orðin 35!! Ætlarðu ekki að fara panta plássið á elliheimilinu'?? Hahahha Ég nota nú gleraugu og það næstum alltaf og ég er bara að verða 27!! Ég er hins vegar aðeins öðruvísi en þú með gleraugnaval þar sem ég þoli ekkert bling bling og vill bara látlausar umgjarðir.

Maður þarf líka smá tíma til að jafna sig eftir meðgöngu! Ég var heillengi að jafna mig eftir Míu meðgöngu og þá var ég bara 20 ára... En hey!! Þú átt prins póló!! hehehe

Kveðja Bjarkey