11. desember 2007


Jæja, þá eru jólin farin að nálgast með hröðum skrefum. Að sjálfsögðu er maður farinn að hita upp með því að éta yfir sig meðal annars á jólahlaðborði, nú síðast með vinnufélögunum í hádeginu í dag. Og ég verð bara að segja að ég fíla sænska jólamatinn, eins og mér fannst hann nú óspennandi fyrst þegar ég flutti hingað. Ég er meir að segja farin að spá í hvort ég eigi að fara að prófa mig áfram með smá sænskan jólamat hérna um jólin. Samt hringdu viðvörunarbjöllur í hausnum á mér fyrst þegar ég fór að spá í þetta, "jæja, er ég nú orðin SVONA sænsk?!?".
En málið er að íslenskur jólamatur er svo sem ekkert gífulega spennandi, ja alla vega íslenskur jólamatur sem maður hefur aðgang í Svíþjóð. Fyrstu jólin hér keyrðum við yfir til Danmerkur til að kaupa hamborgarahrygg alveg þangað til við komust að þeirri niðurstöðu að okkur fannst hamborgarahryggur ekkert góður! Þannig að þá voru góð ráð dýr, niðurstaðan varð sú á endanum að við kaupum sænskt hangiket af Íslendingi sem býr hér ofar í Svíþjóð og svo keyrum við yfir til Köben og kaupum svínabóg með puru. Alveg ágætismatur en ég væri alveg til í smá síld, egg, heitreyktan lax og Freistingu Janssons sem er hreint út sagt hrikalega góð. Og smá spari-sænskar kjötbollur fyrir strákana... Nei, þetta gengur ekki lengur, nú verð ég bara að hysja upp um mig íslensku buxurnar. Kannski að ég ætti að biðja mömmu um að koma með vel kæstan hákarl? Þá er maður nú rammíslenskur ekki satt?

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já sælar! Flott útlit á síðu og fjölskyldu og glæsilegt hlaðborð! Ég segi bara right one, prufukeyra sem mest, setja bragðlaukana í test! ísl. hákarlinn getur beðið á línunni! Hann fer ekkert! En góður er hann.. yummí

Nafnlaus sagði...

Hæ elsku Hlíf og strákar fjórir! Mikið var gaman að lesa þetta blogg og ekki síst Kanaríferðalagið! Fór alveg með þér í huganum. Ég las tölvupóstinn frá þér en þar vantaði slóðina sem ég mundi nottlega ekkert - sat sveitt í klukkutíma og gúgglaði eins og óð og loksins datt ég inn á rétta síðu :)sjúkkit. Æ sakna ykkar og langar að koma í síld og jansons frestelse til ykkar... Já þið eruð að breytast í Svía - því verður ekkert horft framhjá... ó mæ god
knús í klessu
maría og fylgifiskar

Nafnlaus sagði...

Hæjjj loksins fattaði ég þetta!! Eins og ég sagði við mömmu um daginn þá átti ég að fæðast ljóshærð hehe... nu eða heita Bridget Jones!
En síld er íslensk, lax er íslenskur...eða allaveg er það til hérna svo þu ert nu ekki alveg orðin sænsk! ;)

Nafnlaus sagði...

ok..ég er þessi nafnlausa!!!!

Hallrún sagði...

Jamm ég segi að tú sért orðin allt of sænsk tú verður bara að fara að flytja til Akureyrar stax á næsta ári. Nei djok... Já auðvitað að prufa sig áfram í sænskum jólasiðum. Við byrjuðum aðeins á tví síðustu jól. vorum með sænska jólapylsu. Hún var góð. :)