2. desember 2007

Tapas og kaktusalýs.
Jæja, þá er ég komin heim frá Kanarí. Alveg rosalega fín ferð. Sex tímar í flugvél er langur tími, maður er hálf flatrassa á eftir. Ja, brúnn varð maður alla vega ekki í þessari ferð, enda var það ekki planið. Búin að sitja á fyrirlestrum frá morgni til kvölds (ekki verður maður minna flatrassa af því) en þetta voru mjög fínir fyrirlestrar og ég er búin að læra alveg helling. Það er alltaf hægt að læra meira um tennur og allt sem þeim tengist...
Hitinn þarna var afskaplega þægilegur, svona 23 til 25 gráður og oftast smá gola. Mjög undarlegt að sjá jólaskraut í þessu sumarveðri! Vorum í fyrirlestrarfríi á miðvikudeginum og þá greip ég tækifærið og fór í rútuferð um Teneriffa eyjuna. Flestir aðrir ætluðu sko aldeilis að nýta tækifærið og liggja í sólinni allan daginn. Ég hef nú aldrei verið neitt fyrir að liggja í sólbaði, mér finnst það óþægilegt og hef auk þess enga eirð í mér að liggja kyrr og sólbakast!
Þannig að ég fór í rútuferð og sá margt fallegt. Maður hefur þessa mynd í huganum að Kanarí sé eintómar sólarstrendur, hótel og sólbrúnir gamlingjar. Þessi mynd af eyjunum passaði alveg þegar maður skoðaði sig um nálægt hótelinu (hef aldrei á ævi minni séð eins marga og eins brúna gamlingja, eins mikið af dýrum búðum og eins hrikalegan fjölda af veitingahúsum á litlu svæði!), en þegar maður var komin aðeins frá helstu túristasvæðunum var margt áhugavert að sjá. Teneriffa liggur til dæmis það sunnarlega að þar vex ekki gras nema þar sem það er vökvað reglulega. Þannig að út í náttúrunni er ekki stingandi strá að sjá, þarna vaxa bara pálmatré, kaktusar og aðrir þykkblöðungar. Allt fullt af nálum og kaktusávöxtum. Sem sagt ekki gott að hlaupa út á víðavang þar ef maður vill ekki verða allur út í nálum. Kanaríbúar rækta mikið að banönum, þannig að það var mikið af bananatrjám, og auk þess rækta þeir líka möndlur, tóbak, saffran, döðlur, fíkjur og margt annað (Fraktaði heim fíkjum, möndlum, kaktusmarmelaði og pálmasýrópi). Ég gerðist meðal annars svo fræg að prófa að tína kaktusalýs, hafið þið prófað það? Jú, kaktusalýs voru mikilvæg útflutningsvara fyrir eyjaskeggja á árum áður, þær eru nefnilega fullar af eldrauðu litarefni sem var mjög eftirsótt áður en verksmiðjuframleidd litarefni litu dagsins ljós. Campari (áfengið sem er á bragðið eins og eyrnarmergur, jakk!) og sumar tegundir af varalitum eru til dæmis litaðar með lit frá kaktusaúsum.
Ég sá meðal annars fallegasta þorp sem ég hef á ævi minni séð. Hef aldrei séð neitt í líkingu við það, gekk bara um göturnar þar með vantrúarsvip á andlitinu. Ótrúlega fallegt með afslöppuðum smábæjaranda. Vona að ég eigi eftir að komast þangað aftur og stoppa í einhvern tíma. Þegar ég síðan kom "heim" á hótel og fór að lýsa ferðinni fannst mér eins og að margir hálf sæju eftir að hafa legið á ströndinni allan daginn.
En svo var náttúrulega farið út að borða með vinnufélögunum á hverju kvöldi. Meðal annars búin að smakka brjálæðislega góðan fisk að ógleymdu tapasinu. Og svo gerði ég svolítið sem ég hef aldrei gert áður: Stóð upp á veitingastað og söng "Skál og syngja Skagfirðingar" fyrir sænska vinnufélaga mína (var bláedrú!).... jamm, nóg um það... fór svo á diskótek á eftir og dansaði eins og vitlaus manneskja (hef ekki gert það síðan sögur hófust) og uppskar hræðilega strengi í ANNARRI rasskinninni daginn eftir, hvernig sem ég fór nú að því....!!
Ég veit ekki, ég er farin að halda að ég sé frekar grámygluleg og litlaus svona dagsdaglega í vinnunni því vinnufélagar mínir voru oft hissa í ferðinni, fannst alveg stórmerkilegt að sjá mig dansa, fíflast, syngja og láta almennt eins og fífl (eins og mér er annars tamt!). Mér hefur greinilega tekist að villa á mér heimildir fram að þessu.... hí, hí!!
En alla vega, til að gera langa sögu stutta (..of seint..), þá var þetta fín ferð. Skrýtið að koma heim í kuldann og myrkrið, og það sem er ennþá undarlegra: ÞAÐ ERU AÐ KOMA JÓL!!
Jæja, læt þetta nægja að sinni, set inn myndir seinna. Kominn háttatími hjá mér....

1 ummæli:

Hallrún sagði...

Vá frábær saga frá ferðinni. Ég hefði sko viljað sjá tig singja skál og singja skagfirðingar. Vá já ég hafði alltaf verið viss um að vinnufélagar tínir væru vissir um að tú værir algjør púki hehe. Vinnufélagar tínir eru kannski ekki nógu miklir klaufar. Ef teir myndu labba á vegg myndiru sprínga úr hlátri af teim eða hlæja af fólkinu sem er með tannpinu nei djók. Við verðum að fara að djamma og dansa. Tér er hér með boðið á torrablót í febrúar. Jamm tú verður að koma. Hildur verður líka að koma. Tú veist að tað er að verða komið á fjórða ár sem við trjár høfum hist saman. Ég er með smá plan í huganum sem ég vil gera tegar við hittumst allar aftur. Tað kemur í ljós... Bless kaktusalúsaveiðari. Aldrei hefði mér dottið tað í hug að tú myndir tora tví hehe... Fyndið að varalita sig með lúsalit hahaha...