Læt hér fljóta með smá brot úr netpósti sem ég sendi til Sæunnar vinkonu hér um daginn, en talið barst að hversu tæknisinnuð ég er...
"Í mig vantar nefnilega gersamlega tæknilegu hliðina, hef antipat á öllu flóknu tæknilegu drasli. Og það versta af öllu er að þurfa að lesa leiðbeiningabæklinga - það geri ég bara ekki - er bara ekki fyrir mína þolinmæði (hvaða þolinmæði spyr Jónas..!) Er bara ánægð með að geta skrifað e-meil og bloggað! Gemsinn minn er nú kominn til ára sinna, án myndavélar og gvuð má vita hvað sem annars fylgir nútímasímum. Batteríið í honum er eiginlega orðið handónýtt og ég þarf alltaf að vera að hlaða hann en ég vil bara ekki kaupa nýjan! Þá þarf ég nefnilega að læra á hann! Jónas hristir náttúrulega bara hausinn yfir þvermóðskunni í mér. Hann gerði að vísu heiðarlega tilraun til að gera mig aðeins tæknivæddari nú um jólin, en þá gaf hann mér lítinn MP3 spilara. Og er ég búin að nota hann? Nei! Ég er ekki einu sinni búin að hafa það af að setja svo mikið sem eitt lag inn á hann! Sum sé: vonlaus. En sem betur fer á ég bæði hjálplegan eiginmann og son sem geta hjálpað gömlu konunni ef hún vill horfa á DVD en sjónvarpið meika ég sjálf. Og GPSgræjan sem Jónas keypti í haust? Neipp, frekar vafra ég stefnulaust um vegi Skánar í leit að reittum áfangastað...."
Já, svona er það nú með mig, er þetta merki um að maður sé orðinn gamall, eða..??!
9 ummæli:
Neibb þetta hefur ekkert með elli að gera. Þetta er allt mömmu að kenna. Þú getur bara skammað hana. Hvaða þolinmæði hefur hún?! Ég hef reynt að kenna mömmu á símann sinn, senda sms eða eitthvað og hún hefur ekki þolinmæði til að meðtaka neitt af því sem ég sagði. (Hún kann að senda sms núna).
Það bíður mín alltaf eitthvað verkefni þegar ég kem í heimsókn til mömmu :) oftast er það að leisa flækta óróa :)
HAHAHAHA... já mamma mín er reyndar svona líka. Ég er mjög lengi að meðtaka nýja hluti. En fljót að læra á þá ef ég sætti mig yfirhöfuð við þá! þannig þetta hefur ekkert með elli að gera eins og Hallrún segir!!
Takk mínar kæru! Þar með eruð þið búnar að bjarga svosem eins og einni aldurskrísu fyrir horn, ha, ha! Jamm, skortur á þolinmæði hefur náttúrulega ekkert með aldur að gera, nema kannski að því leyti að ekki lagast maður með aldrinum -frekar að maður versni he he...
He, he.
Get toppað þetta Hlíf mín. Ég var að eignast minn fyrsta Gemsa um æfina núna rétt um daginn. Og hef ég notað hann? Æjjjj, þarf þess? Get varla sagt að ég hafi hringt úr honum og dætur mínar kvarta yfir því að það þýði ekkert að hringja í hann, síminn sé alltaf on´í skúffu!
kveðjur af Ströndinni, Elva.
Hahahahah snilld Elva!! En þú kannt þó á internetið!! Mamma fór á námskeið í að kveikja á tölvu og þetta basic en hún er búin að gleyma því strax aftur HAHAHAHAHA ... En til hamingju með nýja símann :)
Hey Bjarkey!!!
Móðgun, móðgun. Er búin að vera með internetið síðan 1995 eða síðan löngu áður en flestir voru komnir með það. Þurfti að vera nettengd þegar ég var í námi. Svo í tölvumálum gæti ég örugglega tekið þig í nefið, he, he. En lengra nær líka ekki tæknivæðingin mín.
Kv. Elva.
Hhahahaha Elva ég var einmitt að segja það!! Þú KANNT á internetið, þó svo að þú kunnir ekki á símann.. ég er sko ekki tæknivædd því ég fékk mína fyrstu tölvu fyrir 3 árum á undan því átti ég ritvél þakka þér fyrir hehehe.. og var að eignast dvd spilara!!! Ég er glötuð þegar kemur að tækni ;)
ha, ha!
Þetta er kannski eitthvað genetískt, kannski vantar bara tæknigenið í Hjallaættina?
Þið skvísur..það er gaman að lesa ´þessar línur ykkar um tæknivæðingu. ....þið eruð bara fyndnar:)...en svosem ég er greinilega ein af ættinni...ekki nógu góð í tæknimálum..farinn að ryðga mikið eftir að ég hætti í skólanum..horfi sárasjáldan á sjónvarpið ég er vonlaus í því, ...kannski ég myndi hafa það af að kveikja rétt á sjónvarpinu eða kannski ekki:)....allavega dvd/video ok ég fikramig fram úr því enda fékk mér fyrsta vídeoið og dvd spilara nú í haust...ég hef hátt fartölvu sem ég nota nánast ekkert...nema Hilda vinkona hefur afrekað að nota tölvuna mína meira á einum mánuði en ég hef notað á einum vetri- alltaf inn á myspace síðunni sinni...enda hafði ég ekki tíma fyrir þetta tæknibull..en hún gerði myspace síðu og lódaði mig inn á msn-ið svo ég væri meira inn:)...svona er að vera gamaldags og vilja meira og gerir það for sure að fara meira í heimsóknir en sitja fyrir framan þennan tölvusjá og tala við sjálfan mig- ég horfi þá og hlusta á fólk- nota manuelt samskipti sem eru miklu hollari og beti:) ....gemsinn sem ég nota er mjög gamaldags...gamall sem minn ex notaði í eldgamla DAGA..EN ÉG keypti mér moterola síma fyrir ári síðan..en hef ekki haft það af að fara í símann og fá að afrita símkortið mitt hjá þeim....nota frekar gamla símann til að missa ekki út númer sem ég er með í símanum:) ...svona er maður mikilvægur...eða maður heldur það:)..hahahah....en þetta er nú meira bullið í mér:) ...en elsku Hlíf það er meiriháttar að þú skulir vera að koma upp á skerið í sumar:) ...hlakka til að hitta ykkur...mín kæra:)
kveðja Hugrún
Skrifa ummæli