22. mars 2008

Bíóferðir og snjómokstur í kafhríð..

Fór með strákana í bíó í dag. Finnst sænsk bíóupplifun ennþá dálítið framandi þrátt fyrir 8 ár í þessu landi. Áður en sýningin hefst kemur einhver starfsmaður bíósins inn í salinn, býður alla velkomna, bendir fólki á hvar klósettin eru, hvar ruslatunnurnar eru og óskar svo öllum góðrar skemmtunar (eftir að hafa minnt alla á, einu sinni enn, að taka með sér allt rusl og henda í tunnuna fyrir utan dyrnar). Jamm, og Svíarnir gera náttúrulega eins og þeim er sagt, þeir taka með sér allt rusl og henda samviskusamlega í ruslatunnuna fyrir utan. En þó ekki fyrr en allir stafirnir eru horfnir af tjaldinu, því enginn stendur upp fyrr en myndin er ALVEG búin. Ekkert sem stressaðir Íslendingar eru vanir, sem sagt.

Nú svo er það hvað menn maula á meðan glápt er. Vanalegast er náttúrlega popp og kók, en bland í poka er líka mjög vinsælt. Svíar bara elska bland í poka, ekki bara börnin, heldur fullorðnir líka. En það eru sko ekki allir sem eru svo flottir á því að kaupa sér bíópopp og drykk í bíóinu fyrir okurprís, það er vanalegt að fólk komi með bakpoka með sér og dragi svo upp plastpoka með heimapoppuðu poppi og djús blandað í einnota plastflöskur. En nú ansi hrædd um að það yrði glápt á mann ef maður gerði slíkt á Skerinu! En ég þarf sem sagt ekkert að hafa áhyggjur af því þar sem ég er frekar ósænsk hvað bíóferðir varðar.

Annars er það helst héðan að frétta að fjölskyldan er heil heilsu! Nú er bara allt á fullu við að gera allt í stand hér fyrir húsasölu. Allar fjölskyldumyndir verða að fara ofan í kassa, það þarf að grisja úr alla smáhluti og slatta af leikföngum. Allt verður náttúrulega að vera tandurhreint og fínt, ekki svo mikið sem spjör í óhreinatauinu, engin borðtuska í vaskanum, engir skítugir skór í forstofunni. Í stuttu máli sagt þá á helst að líta út fyrir að enginn búi hér, þetta sé bara einskonar sýningarhús. Ekki mjög auðvelt þegar maður er með 3 börn, verkinu miðar jafn hratt áfram eins og ef maður væri að moka innkeyrsluna í kafhríð!!

1 ummæli:

Hallrún sagði...

hahaha sæi ég íslendinga fyrir mér fara með nesti með sér í bíó... ...NEI
tað sem mér fannst sérstakast við að fara í bíó í Færeyjum var, að tar tarf maður að sitja eftir sætisnúmeri á miðanum sínum. Hér heima plammar maður sér bara einhverstaðar. Og færeyjingar eru samviskusamir að henda ruslinu í tunnurnar, teppaleggja semsagt ekki bíósalina með poppi hehe.