- Jóhann dúndurhress
- Egill varla farinn að borða neitt ennþá
- Jónas drulluslappur
- Atli veikur, ældi fyrst fyrir 10 dögum og er búinn að æla tvisvar í dag
- Og við getum orðað það svo að ég hafi einhverntíman verið hressari (þó það væri ekki nema andlega af þessu æluveseni)...
Við erum búin að vera með þessa pesti í húsinu í rúmar þrjár vikur núna, þetta fer nú að verða gott.
Jamm, þetta var sem sagt æluskýrslan frá Skáni. Spennandi ekki satt? En yfir í allt aðra sálma.
Svar til Elvu:
Jú, Elva við erum væntanlega að flytja á Skerið í sumar. Það kom endanlega í ljós núna um mánaðarmótin þegar Jónas fékk að vita að hann hefði fengið vinnu á FSA. Við vildum helst ekki ræða þetta við neinn fyrr en það væri komið í ljós nema hvað að mamma vissi hvað við vorum að pæla. En hún fékk skýr fyrirmæli um að segja ekki nokkrum manni frá fyrr en þetta væri komið á hreint. Frekar leiðinlegt að allir væru búnir að frétta af þessu ef Jónas hefði ekki fengið vinnuna. Eitthvað virtist þetta leka út, meir að segja áður en Jónas var svo mikið sem búinn að sækja um stöðuna, en mamma stóð sig í þessu og bláneitaði öllu þegar fólk var að spyrja hana hvort við værum á leið heim.
En þú ert sem sagt fyrsta manneskjan til að spyrja okkur beint!
Þannig að nú er bara heljarinnar sirkus í gangi, mikið sem þarf að huga að fyrir flutninga milli landa. Næst á dagskrá er að setja húsið hér á sölu (við erum búin að festa okkur hús á Íslandi), svo þarf að panta gám og ég veit ekki hvað. Svo mikið er alla vega víst, að það er sko ekki gefið að flytja heim, en maður verður bara að bíta í það súra, þetta leggst alla vega vel í okkur!
5 ummæli:
jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí jibbí velkomin heim.
He, he. Ég er skyggn og berdreymin!!! Tek annars bara undir með Hallrúnu "jibbí, jibbí, jey! Verra með það að ég afrekaði aldrei að koma að heimsækja þig.
Kveðja, Elva.
Vó ég hafði ekki grænann grun!! Enda frétti ég aldrei neitt hehee.. frétti þegar þið Elva voruð búnar að eiga Jóhann og Almar!! En frábært að þið skuluð vera að koma heim!! Bara hlakka til að sjá ykkur hér heima :)
Og jú gangi ykkur rooosalega vel í flytjustandinu!!
kv Bjarkey
hahaha úff ég á ekki að drekka svona mikið...hahahah Ég vissi sem sagt að þið væruð óléttar þegar þið voruð búnar að eiga!!1
þetta eru gleðifréttir að þið skuluð vera á leiðinni heim og það á Akureyri. ég hlakka til
Skrifa ummæli