Ein ég sit og sauma
inn í litlu húsi
enginn kemur að finna mig....
Ég er nú svo aumkunarverð að það hálfa væri nóg. Hér væflast ég bara um húsið og geri ekki neitt að viti. Ég gæti svo sem lesið bók, ég gæti glápt á imbann, ég gæti föndrað, ég gæti stoppað í sokka og síðast en ekki síst gæti ég reynt að taka til. En ég geri ekki neitt nema vafra um og vorkenna sjálfri mér fyrir hvað ég er ein! Jónas og strákarnir fóru til Íslands í morgun og verða í viku og ég hef húsið alveg út af fyrir mig. Þá ætti maður náttúrulega að nota sér það að liggja í leti og lesa bækur, fara í heitt bað og dúlla sér. Og leigja allar þessar "konumyndir" sem ég er alltaf á leiðinni að sjá (en Jónas meikar ekki að horfa á). Já, þó væri nú ekki annað en að taka til án þess að vera truflaður...en...ég bara kann ekki að vera út af fyrir mig lengur! Gersamlega glatað!
Jæja, best að hætt þessu nöldri. Ég hugsa að ég lifi þetta nú af, sérstaklega með tilliti til þess að á miðvikudaginn er ég sjálf að fara til Íslands í örskotsheimsókn til að sjá hana litlu frænku mína, hana Hervöru Frigg. Ég hlakka alveg hrikalega til að sjá hana og Hildi systur. Og náttúrulega Stuttömmu og Sæunni.
Héðan er það annars að frétta að fyrir um það bil viku gekk þvílíkt óveður yfir suður Svíþjóð að fleiri hundruð þúsunda heimila urðu rafmagnslaus. Og þrátt fyrir að búið sé að vinna sleitulaust við viðgerðir síðan þá og meir að segja flytja inn viðgerðarmenn frá öðrum löndum þá eru ennþá tugir þúsunda heimila enn rafmagnslaus. Það er svona, það er ekki allt fengið með því að hafa skóg út um allt. Þegar svona veður gengur yfir þá falla trén yfir allt, yfir hús, bíla, fólk, vegi og síðast en ekki síst rafmagnslínur. Og heilu bæirnir eru eins og eyðiþorp, allt myrkvað og ekki hræðu að sjá nema þá helst innbrotsþjófana sem láta greipar sópa. Það er meir að segja búið að kalla út herinn til að stemma stigum við innbrotum og bjarga öllum gamlingjum sem eru að frjósa úr kulda í rafmagnslausum húsum sínum. Og til þess að elda heitar súpur í risastórum skömmtum handa þeim sem ekki geta verið heima hjá sér. Já, alltaf gott þegar herinn getur gert eitthvað gagn!
Jamm, þetta var nú allt héðan í bili. Kannski að ég kíki hvort það sé eitthvað í sjónvarpinu....
Hlíf auming(ja ég)i

Engin ummæli:
Skrifa ummæli