Jæja, þá er ég búin með fyrstu vikuna í vinnunni. Búin að vera temmilega heilaþvegin þegar ég kem heim á kvöldin, en þetta er nú samt fljótt að koma. Helst tölvufjandinn sem vefst fyrir mér en það er nú ekkert nýtt, he,he! Tannlæknirinn sem ég vinn hjá er við sama heygarðshornið, sem sé alveg jafn fúll og vanalega og allar hinar klinkurnar á stofunni eru yfir sig ánægðar að ég sé komin aftur þannig að þær sleppi við að vinna hjá honum. En sjálfri finnst mér bara fínt að vera hjá honum (ég hlýt bara að vera svona skrýtin). Ég nenni bara ekkert að vera að æsa mig yfir kallinum, hann er bara eins og hann er, besta skinn inn við beinið og svolítið gamall í hettunni. Það gildir bara að loka eyrunum þegar það á við og þykjast vera mátulega sammála til að hafa hann góðan!
Nú svo fer bara að styttast í Kanarí, verður ekki amalegt. Spurning samt hvort maður verði ekki alveg búni að fá nóg af vinnufélögunum eftir að hafa hangið með þeim og engum öðrum í heila viku! En það verður alla vega gaman að sjá Teneriffa, sleikja aðeins sólina (ekki vanþörf á á þessum árstíma) og njóta þess að vera til. Hef ekki einu sinni hugmynd um hvað á að fjalla um á þessu námskeiði, enda talar enginn um það í vinnunni, það eru allir miklu spenntari fyrir sjálfu ferðalaginu og ævintýrinu eins og skiljanlegt er. Þannig að nú er bara að fara að pakka niður sólarvörninni og hárburstanum.....
TENERIFFA HERE I COME!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli