25. desember 2007

GLEÐILEGA JÓLAHÁTÍÐ!!!

Vona að þið eigið gleðilega jólahátíð, kærar þakkir fyrir okkur. Er búin að taka helling af myndum og eitthvað af þeim hlýtur að rata inn á bloggið fljótlega. Erum annars búin að hafa það ósköp gott hérna þrátt fyrir þráláta kvefpest sem verið hefur að herja á fjölskylduna. Erum búin að halda eins íslensk jól eins og hægt er að halda hér um slóðir (meir að segja með norðlensku hangiketi, ORA baunum, maltesíni og laufabrauði!) og það besta af öllu er að geta hlustað á jólakveðjurnar á Rás 1 í gegnum netið. Það er alvöru jólafílingur!
Vonandi hafið þið það gott, jólakveðja ;)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

gleðilegh jól öllsömul, og takk kærlega fyrir mig. skilaðu sérstaklega góðu þakklæti til mömmu þinnar, þetta var frábær jólagjöf. svo biðjum við öll að heilsa, jóla kveðja Svala

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól, og takk fyrir mig!

Atli til hamingju með afmælið!

Nafnlaus sagði...

Gleðileg jól og takk fyrir kortið! Ég sendi engin kort í ár en næsta ár pottþétt ef nýja myndavélin klikkar ekki líka hahaha

Til hamingju með afmælið Atil og hafið það gott um áramótin

kv Bjarkey