1. janúar 2008

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Hér voru róleg og góð árámót hjá okkur. Við borðuðum góðan mat (önd í appelsínusósu a la Jónas sem er orðinn fastur liður í áramótastemmingunni) svo var skotið upp flugeldum. Mér er bara hætt að lítast á blikuna, hér eru sem sagt 3 flugeldabrjálaðir karlmenn á heimilinu og öll mótmæli mín um að það hafi nú ekki þurft að kaupa svo mikið af flugeldum hlusta þeir ekki á. Hér er ég í augljósum minnihluta! Ég sé í hendi mér að flugeldakaupin eigi bara eftir að aukast næstu ár, strákunum fannst þetta alveg brjálæðislega gaman og Jónasi ekki síður. Flugeldakaupin hefðu nú þótt hógvær á íslenskan mælikvarða en við stóðum nú samt fyrir mestu sprengingunum í götunni. Jónas lenti á kjaftatörn við grannana í gærkvöldi en þeir voru þá komnir út á lóð til að skjóta upp þessari einu rakettu sem gestir þeirra höfðu komið með með sér! Svo um miðnætti fórum við öll út á svalir hjá okkur en frá þeim má sjá flestalla flugelda sem skotið er upp í Lundi. Algert stúkustæði verð ég að segja. Og Jóhann sem vaknaði aftur fyrr um kvöldið var alveg agndofa yfir allri litadýrðinni. Í dag er því svo tekið rólega, Egill er úti með vini sínum af safna flugeldaprikum, Atli er í tölvuleiknum sem hann fékk í jólagjöf, mamma er að lesa, Jóhann sefur á sitt græna og Jónas er að bjástra við tölvuna þannig að við getum horft á íslenska áramótaskaupið og annálinn í sjónvarpinu. Vona bara að það takist...

Engin ummæli: