Þegar úti eru 25 stig, brakandi sól, nóg að skemmtilegum hlutum að gera í garðinum og yngsti sonurinn vill bara vera úti; hvað gerir maður þá?Jú, þá lokar maður sig inni í húsi og fer að pakka ofan í kassa!
Þetta er sko mánuðurinn sem maður spáir virkilega í það hvort það sé ekki í lagi með okkur að vera flytja frá þessum fallega stað með þetta æðislega veður. Hér er maímánuður og fyrri partur júní langbestu mánuðirnir. Júlí er oft einum og heitur fyrir svona eskimóa eins og mig. En maí er alveg mátulegur, gott veður, allt er lifnað við í garðinum, kirsuberjatrén í blóma og allar kryddjurtirnar farnar að vaxa. Og geitungarnir ekki enn komnir á stjá. Sem sagt ekki besti mánuðurinn til að fara að pakka. En það þýðir nú svo sem ekki að vera að kvarta, þetta er sko engum að kenna nema okkur sjálfum! Kannski vex manni þetta líka meira í augum þar sem mér finnst ég nýbúin að pakka upp og koma okkur fyrir. En ég er alveg sannfærð um að þetta verður allt þess virði, Ísland er alltaf heima og Akureyri er sko ekki síður fallegt en skánsku slétturnar. Þannig er að nú er bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði og láta sem maður sjái ekki sólina þarna úti, pakka í nokkra kassa og þegar Jóhann er orðinn temmilega inniveikur er pása og við förum út að sleikja sólina. Svo kemur þetta allt með kalda vatninu og einmitt í júlí, þegar svækjan er að drepa mann, komum við heim og njótum norðlenska sumarsins. Nei, þegar betur er að gáð þá gæti þetta bara ekki verið betra!
1 ummæli:
já þetta er þess virði því nú færð þú langt gott sumar byrjar með tvo bestu mánuðina í svíþjóð og svo tvo bestu mánuðina á Akureyri með geitungum og skemmtilegheitum hehe...
Skrifa ummæli