13. maí 2008

Snotra í pössun hjá okkur. Jóhann og hún eru peruvinir og geta endalaust leikið sér saman. Þegar húnn vill vera sérstaklega góð við hann sleikir hún á honum eyrun.

Atli og Egill á Valborgsmessubrennu hérna í hverfinu.



Svaka stuð að fá að vaka langt fram yfir háttatíma!





Hádegismatur úti. Í hestahólfinu blómstra fíflarnir en lengra frá má sjá gulan akur þar sem rapsið blómstrar. Rapsið er ekki bara fallegt svona á vorin, nálægt akrinum er einnig ljúfur ilmur.

Engin ummæli: