1. júní 2008

Andlaus...

Jamm, er nú búin að gera ófáar tilraunirnar til að setja fleiri myndir inn á bloggið, en það endar alltaf með því að ég dett út af netinu. Undarlegt. Er sem sagt ekki með andann yfir mér þessa dagana og ætlaði því að redda mér fyrir horn með því að setja bara inn myndir, en það gengur sem sé ekki!
Í fréttum er það annars helst (fyrir utan bévað pökkunarstandið sem við minnumst nú sem minnst á) er að Egill Ari (millistykkið) er orðinn 6 ára. Hér var haldinn veisla fyrir alla vinina í götunni og foreldra þeirra. Egill ákvað hvað bjóða ætti upp á og valdi hann hamborgara og djöflatertu á eftir. Þetta tókst bara með eindæmum vel og var fullt hús af fólki. Afmælisgjafirnar samanstóðu af alls kyns skrímslum sem ég ekki kann nöfnin á, en það er uppáhaldið þessa dagana ásamt öllu sem hefur með hauskúpur að gera. Hann fékk þó hvorki skrímsli né hauskúpu frá foreldrum sínum, hann fékk reiðhjól, enda orðin eins og hálfgerð rækja að hjóla á gamla hjólinu. Atli lærði ekki að hjóla fyrr en í fyrra og því var ekkert hjól til sem gat "gengið í arf" til Egils. Og nú er sko enginn miskunn, það er ekki til í myndinni að keyra í leikskólann, nú er bara hjólað!
Vinnufélagar mínir buðu mér út að borða um daginn, svona til að þakka fyrir allt og kveðja. Við borðuðum Tapas úti í blíðviðrinu á veitingahúsi niðri í miðbæ og svo var ég leist út með gjöfum. Fékk rosaflotta eyrnalokka og hálsfesti. Mjög gaman en samt sorglegt, ég á eftir að sakna margra. En tvær af þeim sem ég var að vinna með eru alveg harðákveðnar í því að koma í heimsókn til mín næsta sumar. Það yrði sko gaman ef af yrði. Svo er nú eitthvað af grönnunum búnir að vara okkur við að þeir dúkki kannski upp einhvern daginn á Skerinu. Að vísu hef ég litla trú að nokkur Svíi dúkki bara si svona upp í Eikarlundinum. Þeir plana nú svo langt fram í tímann að maður myndi vita það með margra mánaða fyrirvara.
En verð að láta þetta nægja í bili. Er að fara að reyna að svæfa þann yngsta. Reyni enn og aftur seinna með myndirnar...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með daginn um daginn!

Nafnlaus sagði...

... Egill :)

Nafnlaus sagði...

Hæ frænka! Til hamingju með ó-óléttuna :) gaman þegar fólk misskilur svona hluti! Var að lesa þetta skemmtilega blogg þitt... Gangi ykkur vel með alla flutningana á skerið :)

Bestu kveðjur, Berglind frænka