
Ný ísöld?
Svona var útsýnið út um útidyrnar hjá mér á laugardagsmorguninn 18. mars.
Ja, ekki nema von að fók hér á Skáni sé farið að velta fyrir sér hvort komin sé ný ísöld. Hér er ennþá snjór og búinn að vera síðan um jól, og auk þess er myljandi frost hér flesta daga. Svona lengi hefur snjórinn ekki legið yfir Skáni neinn vetur síðan fyrir rúmlega tuttugu árum. Oftast er farið að vora hér í mars og má sem dæmi nefna að fyrsta grill vorsins hjá okkur í fyrra var síðustu helgina í mars. Þá meina ég alvöru grill þar sem setið er úti og borðað. En eitthvað segir mér að fyrsta grill vorsins nú í ár verði ekki næstu helgi!
Eins og hægt er að ímynda sér setur þetta veður ýmislegt úr skorðum. Blóma- og garðplönturæktendur eru til dæmis ekki mjög ánægðir með gang mála, hér er garðplöntusala yfirleitt komin á fullt skrið á þessum árstíma. En fólk heldur að sjálfsögðu að sér höndum á meðan snjórinn situr yfir öllu og kuldinn er svona mikill. En þó finnast þeir sem reyna að láta eins og ekkert sé, dúða sig bara og drösla sér út í nístingskuldann til að gera vorverkin í garðinum. Ja, þau vorverk sem hægt er að gera fyrir snjó! Nágrannakonan mín klippti til dæmis eplatréð sitt um helgina, og var hún þá vopnuð vettlingum, húfu og hvað eina og brölti svo með klippurnar upp stigann sem ekki stóð mjög stöndugt á snjónum. Þarna stóð hún svo skjálfandi í stiganum með sultardropa í nefi og klippti hálffrosnar eplatrésgreinar. Svolítið fyndin sjón verð ég að segja!
Jæja, það er víst lítið við þessu að gera en að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði og vona að bráðum komi betri tíð með blóm í haga!!
Hlíf hálffrosna
1 ummæli:
Hehe fyndinn nágranni sem þú átt! Eins gott að endarnir á epltréinu kali ekki bara! Flott mynd! ég var farin að gleyma hvernig snjór lítur út! síðustu daga hefur mér fundist vera komið vor. En þá á víst að fara að kólna svo vorið er ekki komið enn hér heldur.
Skrifa ummæli