9. mars 2006

Sögur af rauða dreglinum...

Við fjölskyldan tókum okkur til um daginn og fórum í bíltúr til Köben. Ferðinni var heitið í Experimentarium sem svona vísindasafn fyrir börn þar sem má fikta í gersamlega öllu. Atli var svaka spenntur, enda höfum við aldrei farið þangað áður. Eftir svolítið vesen tókst okkur loksins að þræða okkur í gegnum miðbæ Köben og upp í norðurhluta borgarinnar þar sem safnið er. Þegar við komum á áfangastað voru öll stæði upptekin þannig að við þurftum að leggja bílnum dágóðan spöl frá safninu og labba í skítakuldanum. Þegar við komum að safninu vel frosin og vindblásin var þar múgur og margmenni fyrir utan safnið og í anddyrinu. Það fyrsta sem maður sá var rauður dregill sem var útrúllaður frá stéttinni fyrir utan alveg inn og safnið og dyr opnar upp á gátt.
Vá, það er aldeilis flottheit, bara rauði dregillinn útrúllaður, hugsaði ég og sprangaði inn á dregilinn með fjölskylduna í eftirdragi. Þegar við komum inn beið þar fullt af fólki uppáklætt í sínu fínasta pússi. Þegar við komum inn buðu margir af jakkafataliðinu okkur velkomin og vísuðu okkur á hvar við gætum hengt af okkur yfirhafnirnar. Þegar þarna var komið við sögu var mér farið að finnast þetta pínu furðulegt. Mér fannst svona frekar ótrúlegt að allir safngestir fengu svona fínar og allt að því konunglegar móttökur. Þegar við höfðum hengt af okkur og komum fram í andyrið aftur sáum við að fyrir utan safnið var alveg hellingur af fólki sem beið í röð fyrir utan eftir að kaupa miða en þarna stóðum við inni í hitanum og vorum ekki búin að púnga út svo mikið sem krónu. Þetta var ekki alveg stemma, þannig að Jónas fór á endanum í miðasöluna til að tékka á þessu, það var nú svo sem aldrei planið að svindla sér inn.
Jónas fór að spjalla við miðasöluliðið og svo sé ég hann rífa upp veskið og borga. Svo kemur hann skellihlægjandi til baka. Rauði dregillinn var sem sé útrúllaður því Alexandra prinsessa var að koma í heimsókn og þar með var skýringin á öllu þessu uppábúna liði líka komin. En ástæðan fyrir að við höfðum fengið að valsa inn dregilinn var sú að Jónas var með vídeókameruna á öxlinni og féll því vel inn í hópinn af ljósmyndurum og fréttamönnum sem þarna var. Það héldu því allir að hann væri blaðamaður sem hefði bara tekið fjölskylduna með sér.
Svo nokkrum mínútum seinna kom svo hennar hátign Alexandra Danaprinsessa stormandi inn rauða dregilinn með fylgdarliði. Þvílíkur sirkus í kringum eina manneskju. Þannig að við náðum í þessari heimsókn ekki bara að sjá safnið, heldur líka að sjá eitt stykki prinsessu og að prófa að þramma á rauða dreglinum sem gerist nú sennilega ekki aftur á næstunni!

Annars var safnið alveg snilld, við hefðum getað stoppað þar í nokkra daga án þess að strákunum leiddist. Þeir prófuðu alls kyns kúnstir m.a. að pússla saman plastinnyflum, mæla viðbragðsflýti, dæla vatni, gera ýmiskonar tilraunir með segul, gefa róbót að éta, hanna sín eigin hljóð og ég veit ekki hvað. Ég held að engu barni geti leiðst þarna inni. En Alexöndru prinsessu voru þeir minna spenntir fyrir, eða eins og Atli sagði: "Iss, mér finnst hún nú bara lítil og svo sér maður hana ekki einu sinni almennilega fyrir hattinum!"

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hahahhahah.... Þið eruð met!!!! valsa bara innan um konungborna hehehe... góð!!