4. mars 2006

The day from hell....

Já, það má kannski segja að dagurinn í gær hafi ekki verið neinn draumadagur...
Í gær var sýning á húsinu milli klukkan 3 og 7 þannig að við gátum ekki verið heima á þeim tíma. Hefði í sjálfu sér verið allt í lagi á "venjulegum" degi en í gær var enginn venjulegur dagur. Ég fann um leið og ég vaknaði að ég var sko ekki í neinu toppformi. Hálsinn bólgnari en ég veit ekki hvað, og var auk þess með bæði eyrnaverk og hita. Jæja, drattaðist fram úr rúminu til að koma strákunum í skólann og leikskólann. Atli kvartaði um að sér væri illt í maganum og ég sagði við hann að það myndi nú örugglega lagast þegar hann væri búinn að borða. Svo þegar ég ætlaði að fara að bursta og stakk tannburstanum upp í hann ældi hann á mig. Og þarna stóð ég drulluslöpp, útæld með hálsbógu og hita, Atli með ælupest, húsið á hvolfi og allt átti að vera tipptopp og við farin út úr húsi eftir hádegi! Ekki alveg draumastaða! Og eitthvað hefur Egill fundið á sér að hlutirnir væru ekki alveg eins og þeir ættu að vera þannig að hann tilkynnti það að hann vildi fara í leikskólann núna strax, annars yrði hann "rosa leiður". Já, það er á svona augnablikum sem undirrituð er alveg pollróleg... ehemm.. mja.. eða svona næstum...
Jæja, það er styst frá því að segja að þetta bjargaðist nú allt saman (eftir panikhringingu í vinnuna til eiginmannsins: "Þú VERÐUR að koma ..NÚNA!")

Og í dag, daginn eftir, sit ég hér upp í sófa, kallinn í vinnunni, strákarnir sofnaðir og ég búin að éta óheilsusamlega stóra skammta af verkjatöflum af öllum stærðum og gerðum. Úti snjóar bara og snjóar og það má segja að það sé hálfgerð jólastemming þegar maður kíkir út. Hér hefur hvorki verið svona mikill snjór og svona lengi í meir en 20 ár og allir snjóruðningspeningar löngu búnir.

Jamm, best að fara að finna sér fleiri Panodil
Hlíf í töflurússi

(Fyrir þá sem eru búnir að reyna að setja inn comment en hafa ekki getað það - ég held ég sé búin að fixa það þannig að það er bara að prófa).

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jeeeiiii Vúhú.. ég get kommentað!!! ÆJjj æjjj þetta hefur verið óheilladagur!! Gott að þú þarft ekki að flýja hús strax aftur!! Látið ykkur batna blæjó!!!

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ ég ætlaði að kommenta um daginn og síðan fraus alltaf. Það er greinilegt að fuglaflensan er komin til Svíþjóðar!. Ég vona að þið náið ykkur fljótt.

Nafnlaus sagði...

Kannski er þetta bara FULLAflensan hehehehe