
Já, þó að skánsku veturnir séu kaldir, blautir og drungalegir þá eru þeir nú ekki mjög langir. Nú þegar má sjá fyrstu vorlaukana skjóta upp kollinum hér og hvar. Það er nú að vísu alveg í fyrsta lagi, hér er náttúrulega ennþá skítakuldi, en mikið ósköp þykir manni samt gaman að sjá að bjartari tímar með blóm í haga eru kannski ekki eins fjarri og ætla mætti. Þessi mynd er tekin beint fyrir utan útidyrnar hjá mér, þarna eru "snödropparnir" mínir þegar farnir að blómstra!
2 ummæli:
Vá það er nú bara janúar ennþá.
Þú hefðir getað farið út í garð og tínt blómvönd handa Jónasi á Bóndadaginn (sem var 25. janúar :) :p
hummm...bóndadagur...hvað er nú það...?! Jæja, missti sumsé af þeim sénsi að blíðka kallinn, er bara með sænskt dagatal og þar er að sjálfsögðu ekki bóndadagurinn skrifaður inn á!!
Skrifa ummæli