Jamm, það er nú meiri framtakssemin í manni þessa dagana. Eftir að jólaskrautinu var pakkað niður er maður ekki búinn að gera mikið annað en að vinna og sinna börnum og búi. Ekki það að það er nóg bara að sinna því. Hér er vetruinn jafn grár og drungalegur og vanalega, enginn snjór og örsjaldan sól. Ég held að það hafi tvisvar eða þrisvar sést til sólar hér nýja árinu, og þá bara smá stund í senn. Hér vantar svona fína bjarta daga með skítakulda og sól! Það gáfulegasta sem hægt er að gera á þessum árstíma er að gera sem minnst, kannski hugsanlega skipuleggja sumarfríið!
Jæja, ég ætla annars ekki að kvarta meira. Hér eru allir hressir, Jóhann bara stækkar og stækkar og æðir út um allar trissur, feginn frelsinu sem fylgir því að geta labbað. Atli er algerlega húkkt á tölvuleiknum frá Hallrúnu og Rana og sífellt að skipuleggja einhverjar árársir á Spánverja eða einhverjar aðrar ræfils þjóðir. Egill er aftur komin á fullt í tennis og fótbolta og svo er líka nóg að gera að leika sér með "götugenginu" hér í götunni. Jónas fílar sig í tætlur sem heimavinnandi heimilisfaðir, spurning hvort hann vilji nokkuð út á vinnumarkaðinn aftur! Og ég snýst í kringum tannlæknana, blóta tölvufjandanum, blanda fyllingar, bóka tíma, sótthreinsa og spjalla við sjúklinga alveg eins og vanalega. Hér er sem sagt allt eins og það á að vera, það vantar bara sólina (og snjóinn ef strákarnir fengju að ráða)!
Engin ummæli:
Skrifa ummæli