2. maí 2008

MIKILVÆG LEIÐRÉTTING!

Já, nú verð ég nú bara að fara að skýra málin. Stundum þarf maður greinilega að spekúlera aðeins í hvað maður er að segja svo það misskiljist ekki. Og það að hugsa áður en ég tala (eða skrifa) hefur nú aldrei verið mín sterkasta hlið, en kannski ég þurfi að fara að bæta mig í þessum málum. Þeir sem kíkt hafa á bloggið mitt annað slagið hafa varla misst af því að þrálát ælupest herjaði hér á fjölskylduna fyrir dálitlu síðan. Síðasta bloggið sem ég skrfaði var um þegar Jónas fékk ælupestina í þriðja sinn og Atli spurði hvaða hljóð þetta væru sem hann heyrði frá baðherberginu þegar Jónas var að æla. Einhvernveginn tókst nú ekki betur til en svo með það innlegg að fullt af fólki misskildi um hvað ég var að skrifa og hélt að um morgunógleði væri að ræða (s.s. hjá mér, ekki Jónasi!!). Þegar ég sagði mömmu og Hallrúnu frá þessu ætluðu þær að rifna úr hlátri og sögðu mér endilega vera ekkert að leiðrétta þetta og láta alla halda að ég væri ólétt. Því hélt ég ró minni í svolítinn tíma. En nú eru svo margir farnir að halda þetta og meir að segja Sæunn vinkona búin að óska mér til hamingju, að ég meika þetta ekki lengur.
Sem sagt, til að gera langa sögu stutta þá er málið: ÉG ER EKKI ÓLÉTT! Og það er sko alls ekki á planinu, er sko alveg búinn að gera mitt í þeirri deildinni. Púff, gott að fá þetta á hreint. S.s. engar hamingjuóskir og pakkið niður prjónunum, minn tími er ekki kominn!!!!!!!!
Sorry tengdó....

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hhehe ég tók því sem að þú værir að fá ælupestina því þú tókst ekkert fram hver var að æla. En ég er svo ljóshærð að ekki datt mér í hug að þú værir ólétt. Miskilningurinn var samt alveg bráðfyndinn!!!!