Snjóstormur
Snjónum kyngir niður, hálka úti um allt, fullt af bílslysum, fótbrotum og ég veit bara ekki hvað. Skítakuldi og varla hundi út sygandi. Snjóstormur.
Ef eitthvað er að marka dagblöðin og fréttirnar þá er þetta ástand mála hér á Skáni akkúrat í augnablikinu. Dagblöðin skarta stórum myndum af snjóstorminum á forsíðunni, gjarnan með nokkrum klesstum bílum og svo sem eins og einum almennilegum snjóplóg í forgrunninum. Það mætti bara halda að allt væri komið á heljarþröm.
Nú, og svo kíkir maður út um gluggan og sér að það passar að það hafi snjóað. Mér sýnist að það sé um tveggja sentimetra jafnfallin fönn fyrir utan gluggann. Annars bara fínasta veður og nokkrar mínusgráður. Ekki neitt sem hægt er að kvarta yfir, á minn mælikvarða alla vega.
Ég er búin að sjá það að maður verður að læra aðeins að lesa á milli línanna þegar talað er um snjóstorm hér um slóðir. Ég er farin að sjá það að öll úrkoma sem fellur í frosnu eða hálffrosnu formi hér kallast snjórstormur. Og skiptir þá engu máli hvort hár bærist á höfði eða ekki. Það er því lítið fútt í þessum skánsku snjóstormum fyrir Íslending.
Þegar líður fram að hádegi sé ég grannana koma út einn af öðrum til að sópa innkeyrsluna hjá sér. Snjór í innkeyrslunni virðist vera algjörlega bannaður hér um slóðir. Allir út og sópa og moka þessi þrjú snjókorn sem lentu í innkeyrslunni og fyrir utan útidyrnar. Sjálf sé ég nú ekki alveg tilgangin í því, þetta verður hvort sem er horfið í síðasta lagi á morgun. Ég held nú meir að segja að allir grannarnir mínir þarna fyrir utan viti það svo sem líka, þetta er meira spurning um að sýna að maður sé duglegur og taki til hendinni. O jamm, einhver verður að vera letinginn í hverfinu, ég er sennilega kjörin í það. Snjókornin mín mega bara alveg liggja hér fyrir utan hjá mér - þangað til á morgun.

Engin ummæli:
Skrifa ummæli