10. febrúar 2006

Sat og kíkkaði á bloggið hjá henni Hallrúnu eins ég geri nú alltaf annað slagið. Sá einhverja leinka þarna til vinstri, fyrst Egill og Atli og kíkti á það, jú það var náttúrulega heimasíðan þeirra bræðra sem aldrei nokkurn tíman er uppdateruð (nema í mesta lagi út af húsbyggingum!) en svo sá ég leink merktan mér: Hlíf. Humm, hvað er nú þetta hugsaði ég og kíktir og jú, viti menn var ekki bloggsíðan mín þarna. Og ég sem var bara búin að steingleyma að ég ætti bloggsíðu! Talandi um að vera kölkuð. Það er ár síðan ég bloggaði síðast, þá var ég alveg að verða 33 og nú er ég alveg að verða 34. Og alveg eins og fyrir ári síðan er ég búin að bæta á mig ári og kílói, ja, eða sennilega fleirum!

Jæja, kannski að ég fari bara að blogga aftur - alla vega þangað til að ég gleymi því aftur að ég eigi bloggsíðu, ja, maður veit aldrei - maður er nú einu sinni orðinn hundgamall!

Hlíf - með enga aldurskrísu .. heh...

Engin ummæli: