Jæja, þá eru ég og strákarnir búin að vera á hálfgerðum vergangi í dag. Kom í stresskasti heim úr vinnunni til að gera síðustu paniktiltektina og akkúrat þegar ég var búin kom fasteignasalinn. Þá var bara ekkert annað að gera en að pilla sér. Milli klukkarn 2 og 7 í dag gátum við ekki farið heim því þar var fasteignasalinn að taka á móti áhugasömum hússpekúlöntum. Í dag komu 13 fjölskyldur að skoða og svo á fimmtudaginn kemur slatti í viðbót. Vonandi líst nógu mörgum vel á til að boðið verði hressileg í!!
Úff er þokkalega heiladauð eftir daginn, sé koddann minn í hyllingum...
Hlíf með $ merki í augnum
Engin ummæli:
Skrifa ummæli