23. febrúar 2006

Til hamingju Ísland...
yfir að vera búið að velja versta lag sem sögur fara af í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Ég er nú í alvöru talað að spá hvort það sé ekki örugglega í lagi með landann. Þetta lag sem búið er að velja er alveg með eindæmum lélegt, þessi stúlkukind sem er "alter ego" Sylvia Nótt virðist ekki kunna að syngja þó svo að líf hennar lægi við. En það versta af öllu er að þessi horror allur saman er ekki einu sinni fyndinn. Það er nú nefnilega svo að það er munur á vandræðalegu og fyndnu. Sumt vandræðalegt er þrælfyndið er þetta er dæmi um vandræðahátt sem er bara vandræðalegur og ekki baun fyndinn.
Ég hefði sagt að ef maður vill gefa skít í söngvakeppnina þá á Ísland bara að sleppa því að senda fulltrúa, en að senda svona fulltrúa er náttúrulega bara skömm fyrir land og þjóð. Er fólk ekki að fatta hvað söngvakeppnina er góð auglýsing fyrir Ísland? Og virkilega slæm auglýsing eins og þetta lag er er sko verri en engin auglýsing.
Er búin að vara vinnufélaga mína við óskapnaðinum og er að hugsa um að ganga um með hauspoka hér í maí. Já, í fullri hreinskilni, ég bara hef ekki húmor fyrir þessu. Og hvort það er út af því að ég sé orðin svona "afíslenskuð" og húmorslaus veit ég ekki en eins og þið skiljið af þessum línum er ég virkilega miður mín yfir þessu! Ég vil því hér með nota tækifæri og senda samúðarkveðjur til allra sem eru jafn pirraðir yfir þessu og ég...
Áfram Júróvisjón! ...og ég kem til með að kjósa alla aðra áður en ég kýs Ísland. -sorry!
Pirr, arg, stuna, hvæs, nöldur.
Hlíf

Engin ummæli: