Nýjung í innanhússarkitektúr?
Stundum finnst mér nóg um sjónvarpsgláp strákana hér á heimlinu. Þeir bræður gætu alveg hugsað sér að glápa á sjónvarpið heilu og hálfu dagana ef þeir bara fengju frið fyrir foreldrum sínum til þess. Þeir fá ekki að horfa nema visst mikið á imbann, nema helst á föstudagseftirmiðdögum þegar sýnd er klukkustundar löng sería af gömlum Disneymyndum á danska ríkissjónvarpinu. Þá eru þeir svo gersamlega inn í sjónvarpinu að það er varla nokkur leið að fá samband við þá. Það versta er þegar við erum sein með matinn og Disneyserían nær að byrja áður en þeir eru búnir að éta. Þá er sko ekki hægt að halda þeim föngnum inni í eldhúsi. Þeir eru svo spenntir yfir Andrési og Mikka mús og félögum að þá má sko ekki einu sinni missa af hálfri mínútu út af pissupásu.
Þeir bræður hafa þurft að hlusta töluvert á foreldra sína undanfarið þegar við höfum verið að ræða eitt og annað varðandi nýja húsið. Hvernig eigi að hafa þetta allt saman þegar við flytjum og þó strákarnir séu sennilega oft þreyttir á öllum þessum pælingum þá eru þeir náttúrulega líka spenntir fyrir nýja húsinu.
En eftir Disneyseríuna í kvöld hefur Egill greinilega verið að spá í hvort ekki væri hægt að betrumbæta þetta nýja hús eitthvað og þar með koma í veg fyrir þetta leiðindarvandamál með pissuspreng í miðju Disneysjóvi því hann kom til mín og spurði:
-"Mamma, þegar við flytjum á nýja staðinn, ...getum við þá ekki bara haft klósett í stofunni?"
Jamm, það er spuning hvort þeir séu orðinir einum of sjónvarpssjúkir. Kannski við spilum bara Yatzy á morgun - með pissupásum....

2 ummæli:
Jáhá þig fáið ykkur bara 16" lcd flatskjá á klósettið svo strákarnir geta hlaupið á klósettið og ekki misst af neinu úr Disneystundinni !
Hehehe... já það er líka bara töff að hafa klósett í stofunni!! Hvað er að þér?? Ertu ekki að segja að Svíar séu ekki mikið fyrir innanhúsarkitektúr?? Bara hanna töff klósett við stofun hehe
Skrifa ummæli