18. mars 2007

Meatloaf-ur Hauksson og sigurvissir Svíar

Kíkti inn á heimasíðu Ríkisjónvarpsins um daginn til að sjá íslenska lagið sem senda á í Júróvisjón. Fyrst hlustaði ég bara á lagið og fattaði ekki að hægt væri að sjá myndbandið líka. Mér fannst lagið bara ágætt við hlustun. Svo sá ég að hægt var að sjá myndbandið líka þannig að ég kíkti á það. En þá fór hrifningin dvínandi. Talandi um gangandi tímaskekkju. Eiríkur ræfillinn hefur greinilega ekki fengið styrk frá Ríkissjónvarpinu til að kaupa sér ný sviðsföt þannig að hann hefur þurft að dursta rykið af þeim sem hann var í þegar hann söng "Gaggó vest" hér um árið. Og hárburstanum gleymdi hann greinilega heima hjá sér í Noregi. Vona bara að hann verði búinn að spara sér fyrir almennilegum fötum (sem ekki þarf heila kúahjörð í) og ná í hárburstann til Noregs fyrir keppnina.
Í Skánska dagblaðinu í dag var verið að dæma öll lögin sem eiga að keppa í Júróvisjón í maí og þar með talið íslenska lagið. Í stuttu máli sagt fékk lagið algeran falldóm. Og þar sem Svíunum finnst annað hvert orð í íslensku enda á -ur, þá var Eiríkur snarlega skírður "Meatloaf-ur" í höfuðið á afdankaða bandaríska þungarokkaranum, sem mér fannst nú frekar fyndið.
En hvað sænska Júrúvisjónlaginu viðkemur, þá eru Svíarnir það sigurvissir að þeir eru þegar farnir að skipuleggja hvernig á að halda upp á sigurinn ÞEGAR Svíar vinna í maí. Í fúlustu alvöru!

Engin ummæli: