19. janúar 2008

Af hernaðarbrölti Eyjaskeggja.

Já, ekki er öll vitleysan eins.
Á nýársdag náði Jónas í Innlendan fréttaannál og Skaupið á netinu. Og svo með smá tilfæringum, snúruflækjum og veseni gátum við horft á herlegheitin. Þá er nú eins gott að horfa á þetta í réttri röð, annálinn fyrst og svo Skaupið á eftir svo maður skilji eitthvað í því. Við Jónas erum nefnilega orðin ansi löt við að fylgjast með fréttum frá Íslandi. Jú, fréttaannállinn var áhugaverður og Skaupið bara ansi gott en það er nú samt eitt atriðið sem mér finnst standa alveg upp úr sem alfyndnast af öllu. Og það merkilega er að það atriði var ekki í Skaupinu heldur í annálinum! Það var fréttin um þennan eina íslenska hermann sem kallaður var heim frá ...Króatíu eða hvaða landi sem það nú annars var. Þetta hafði greinilega orðið stórmál á Íslandi og í annálinum var meðal annars viðtal við einhvern pólitíkus sem háalvarlegur hélt því fram að með því að skipa þessum einum hermannaræfli að hypja sig heim værum við að svíkja heilu Króatísku þjóðina (eða einhverja aðra Astur-Evrópu þjóð sem ég ekki man hvað heitir). Ég verð nú bara að segja það að þetta hlýtur að hafa verið einhver súperhermaður fyrst hann getur haft afgerandi áhrif fall eða líf þessarar þjóðar.
Einhverra hluta barst það svo í tal í vinnunni um daginn, þetta um hermenn sem sendir eru til Austur-Evrópu. Þá datt mér í hug íslenski hermannaræfillinn sem á þessum tímapunkti var sennilega aftur kominn heim á Skerið. Ég veit ekki hvert vinnufélagar mínir ætluðu, þeim fannst þetta svo fyndið. Það er eitthvað súrrealistískt við að senda einn hermann, en samt samt ennþá súrrealískara að halda því fram að maður svíki heila þjóð með að kalla hann heim. Svo spunnust heilmiklar umræður um það hvernig þessi eini ræfils Íslendingur hefði haft það þarna austur í Fjarskanistan þegar hann var þar. Væflaðist hann um í einsemd sinni með tjaldið sitt á bakinu? Eða bankaði hann kannski upp á í tjaldbúðum Svía og spurði með bænaraugum hvort hann fengi að vera memm? Jæja, ekki veit ég. Ég finn það samt að þetta er háalvarlegt mál fyrir íslensku þjóðina og alls ekkert til að gera grín af. Kannski er eitthvað sem ég er ekki að fatta í þessu samhengi, en þá hlýt ég bara í fattleysi mínu að fá að hlægja að öllu saman, ekki satt?
Áfram Ísland, heimsins stærsta smáþjóð!!

4 ummæli:

Hallrún sagði...

Ég sé hann fyrir mér í víkingaklæðum með sverð og sköld, ríðandi á gráum hesti með baggabandstaum. Sannur ísklenskur víkingur! með baráttuvilja eins og naut, af hverju þarf annann hermannsræfil!
Því þetta var hinn eini sanni Glatiator.
Maður svíkur hvaða þjóð með því að senda hann heim á skerið aftur.
Þeir fengu nú samt að eiga gráa hestinn, þar sem það má ekki flytja hann aftur á klakann.

Nafnlaus sagði...

ha, ha, ha þessi var alger snilld!

Nafnlaus sagði...

http://www.comedycentral.com/motherload/player.jhtml?ml_video=148212&is_large=true

Þu bara verður að sjá þetta!! Einhverjri kanar að gera grín að þessu máli í sjónvarpsþætti! Einn hermaður sem var kallaður til baka... og það var KONA!!! þetta er ýkt fyndið myndband!!!

Nafnlaus sagði...

Takk Bjarkey, snilld að fá þennan leink, það er greinilegt að það fannst fleirum en mér þetta spaugilegt!