31. janúar 2008

Af sorphiðumálum í Svíaríki



Einhverntíman man ég eftir að hafa heyrt einhvern segja að sé maður staddur í Sviss þurfi maður "meirapróf" til að geta fleygt einu karamellubréfi. Ég man að þegar ég heyrði þetta fannst mér þetta frekar fyndið, enda týpískur Íslendingur sem henti öllu rusli, sama úr hverju það var, í sömu ruslatunnuna. Það var kannski helst rétt áður en við fluttum til Svíþjóðar sem við vorum farin vera duglegri við að sortera, alla vega dagblöðin. En síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar. Er nú svo komið að það er sko ekki á færi allra að fara út og henda ruslinu í sorptunnuna hér á heimilinu. Eða tunnurnar öllu heldur. Í innkeyrslunni að húsinu standa nú sum sé tvær stórar og glænýjar sorptunnur með fjórum hólfum hver, sem sortera þarf í samkvæmt kúnstarinnar reglum. Það að rusl sé bara rusl eru liðnir tímar. Fyrir utan "lífrænt rusl", þ.e. matarafganga og slíkt, sorterum við í pappírsrusl, mjólkurfernur og kassa, harðplast, ál, litað og ólitað gler, plastflöskur, batterí, ljósaperur, garðaúrgang og rusl sem má brenna, svo sem timbur og plastpoka. Aðrir "spes" hlutir eins og málningarafgangar, gömul rafmagnstæki, spreybrúsar, steypubrot og steinar og ég veit ekki hvað þarf svo að sjálfsögðu að keyra á endurvinnsluna. Og er ég örugglega að gleyma einhverju í upptalningunni. Það er því ekki alveg laust við að stundum verði maður bara ringlaður þegar maður stendur þarna með "ruslið" í hendinni og veit ekkert í hvaða hólf það á að fara. En það gildir bara að bíta á jaxlinn og bölva í hljóði, allt er þetta jú gert fyrir náttúruna og svo vill maður að sjálfsögðu ekki verða tekinn af "sorplöggunni". Eins og gamla konan sem var kærð fyrir að skilja gömlu steikarpönnuna sína eftir við hliðina á ál-gámnum þar sem gatið til að henda pönnunni í gáminn var ekki nógu stórt.

Já, Svíar taka þetta með að vera umhverfisvænn mjög alvarlega svo ekki sé meira sagt...

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vó og hvað átti gamla konan að gera við pönnuna?

Nafnlaus sagði...

Góð spurning. Jú, það er hægt að lyfta lokinu, með erfiðismunum þó. Lokið er þyngt, vegur á milli 20 og 30 kg svo það sé ekki verið að fíflast í því. Konugreyið átti sem sé að lyfta lokinu...(ALLIR þurfa jú að fylgja lögunum!). Já, Svíar gefa hugtakinu ósveigjanleiki alveg nýjar víddir!

Nafnlaus sagði...

HAHAHA æji greyið gamla konan :S Pínkufyndið samt að ímynda sér það hehe... Allavega þá var þetta eins og afturhvarf til fortíðar að flytja á Suðurnesin. Ég var alltaf vön að flokka mitt þegar ég vann í Sorpu þá varð maður auðvitað að vera góð fyrirmynd, mig langaði ekki að segja fólki hvað það ætti að gera og svo gera það ekki sjálf. En allavega þá setur fólk bara Allt ALLT í gámana hérna í Kölku, það er ekki einu sinni flokkað á stöðinni... Ég er geggjað hneyksluð skohh.. hehe

Nafnlaus sagði...

Heyrðu, heyrðu.... það vantar gestabókina hjá þér og veit ekki netfangið þitt, þannig að þetta er eina leiðin til að ná sambandi....

Allavega...

...Hamingjóskir með daginn, kveðja Elva og familie!