4. mars 2007

Jæja, búin að fara og ná í Prins Póló kassann minn. Þegar ég var búin að ná í gleraugun þá fór ég náttúrulega beint yfir götuna inn í Polonia búðina. Þar stóð hópur fólks við kassann og virtist vera að ræða landsins gagn og nauðsynjar - allt á pólsku. Ég stillti mér kurteislega upp aftan við hópinn og beið. Allt í einu þögnuðu allir og litu á mig. Ég varð náttúrulega alveg eins og bjáni en tókst samt að stynja upp að ég væri að ná í Prins Póló kassann sem ég hefði pantað í síðustu viku. Konan við kassan afsakaði sig og fór inn á lager til að sækja kassann. Á meðan spjölluðu Pólverjarnir í hálfum hljóðum og horfðu á mig. Ég var sko farin að fatta að þarna var ég þokkalega ekki að passa inn, sennilega eru níutíuogníu prósent af kúnnunum pólverjar. Þegar konan kom til baka með kassann fór hún að skýra út fyrir Pólverjunum að ég væri að sækja Prins Póló súkkulaði, allir Íslendingar væru nefnilega alveg vitlausir í Prins Póló. Hún hafði greinilega heyrt skýringu einhvers Íslendings á því hvernig þetta súkkulaði varð svona vinsælt hjá landanum og útlistaði þetta fyrir löndum sínum. Allt í einu horfði allir hópurinn á mig aftur með spurnaraugum. Ég brosti vandræðalegu brosi og byrjaði í fáti að fálma eftir veskinu mínu. Loksins gat ein eldri kona í hópnum ekki orða bundist: Af hverju Prins Póló? Það er ekkert merkilegt. Það er sko til miklu betra pólskt súkkulaði en Prins Póló! Ég brosti ennþá meira vandræðalega og hélt þéttingsfast um peningaveskið mitt. Áður en ég vissi af var sú gamla búin að draga mig inn að súkkulaðihyllunum og fór að fræða mig um sögu pólsks súkkulaðis.
-"Englamjólk". "Englamjólk, þú bara verður að prófa hana!"
Nú var mér sko alveg hætt að lítast á blikuna. Ég sem hafði bara ætlað að ná í mitt Pins Póló og nú var einhver pólsk kelling farin að reyna að pranga inn á mig einhverju sem hljómaði eins og eitthvað ólöglegt. Vandræðalega brosið var orðið gersamlega frosið á andlitinu. Konan á kassanum hefur kannski fundið að þetta var orðið vandræðalegt og kom mér til bjargar og sagði við þá gömlu að ég væri nú bara að sækja þennan kassa í dag en næst þegar ég kæmi myndi ég örugglega prófa englamjólkina. En englamjólk eru sem sagt súkkulaðibitar fylltir með vanillukremi. Sú gamla lét það gott heita en minnti mig á að Prins Póló væri bara prump og ég ætti að kaupa almennilegt pólskt súkkulaði.
Ég borgaði Prinskassann minn og hópurinn horfði á mig fara út. Þegar ég var um það bil að loka dyrunum upphófust miklar umræður aftur sem örugglega snerust um þessa skrýtnu Íslendinga sem ekki vita hvað er gott súkkulaði.
En ég, ég er bara heimskur Íslendingur sem ekki veit betur og er því sæl og ánægð með mitt lélega pólska súkkulaði. En hver veit nema nema ég sé að missa af einhverri guðdómlegri sælkerasúkkulaðiupplifun og er því ekki útilokað að ég prófi bara englamjólkina næst!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

já sko mína ekkert að láta ráðskast með þig, þetta líkar mér. englamjólk hvað, þegar völ er á prinspóló

Nafnlaus sagði...

þú bara verður að prófa nokkuð sem heitir Klejnoty því það er eitt besta konfekt sem ég hef smakkað á ævinni!!! Mæ ó mæ.. Það er alveg skartgripir(nafnið þýðir það hehe)

Það er póverji að vinna með mér og hann er sko búinn að kynna mig fyrir svona góðu eðal súkkulaði hehe

Njóttu prins pólósins því kassinn verður búinn áður en þú veist af ;P